Kornið komi til Líbanon á sunnudag

Úkraína | 5. ágúst 2022

Kornið komi til Líbanon á sunnudag

Áætlað er að fyrsti farmur af korni frá Úkraínu, frá því að innrás Rússa hófst í febrúar, komi til hafnarborgarinnar Trípólí í norðurhluta Líbanon á sunnudagsmorgun.

Kornið komi til Líbanon á sunnudag

Úkraína | 5. ágúst 2022

Skipið Razoni lagði af stað frá höfninni í Ódessa á …
Skipið Razoni lagði af stað frá höfninni í Ódessa á mánudaginn. AFP

Áætlað er að fyrsti farmur af korni frá Úkraínu, frá því að innrás Rússa hófst í febrúar, komi til hafnarborgarinnar Trípólí í norðurhluta Líbanon á sunnudagsmorgun.

Áætlað er að fyrsti farmur af korni frá Úkraínu, frá því að innrás Rússa hófst í febrúar, komi til hafnarborgarinnar Trípólí í norðurhluta Líbanon á sunnudagsmorgun.

Skipið Razoni frá Síerra Leóne lagði af stað frá höfninni í Ódessa í Úkraínu snemma morguns á mánudaginn með 26.000 tonn af korni og nam staðar í Tyrklandi degi síðar.

Sextán skip munu sigla

Afhendingin er sú fyrsta samkvæmt samningi sem undirritaður var af hálfu Rússlands og Úkraínu við Sameinuðu þjóðirnar og Tyrkland í júlí. Honum er ætlað að draga úr alþjóðlegri matvælakreppu.

Þá hafa yfirvöld í Úkraínu gefið það út að önnur sextán skip hlaðin korni bíði nú eftir að fara frá úkraínskum höfnum, en þrjú þeirra eiga að sigla í dag.

mbl.is