Fjölmargir sótt um stöðu landvarðar

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 16. ágúst 2022

Fjölmargir sótt um stöðu landvarðar

Umhverfisstofnun hefur borist fjölmargar umsóknir um stöðu landvarðar við gosstöðvarnar í Meradölum. Leitað er að sex einstaklingum í fullt starf til áramóta með möguleika á framlengingu ef þörf verður á. 

Fjölmargir sótt um stöðu landvarðar

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 16. ágúst 2022

Landverðir koma til með að létta und­ir með björg­un­ar­sveit­um.
Landverðir koma til með að létta und­ir með björg­un­ar­sveit­um. mbl.is/Hákon

Umhverfisstofnun hefur borist fjölmargar umsóknir um stöðu landvarðar við gosstöðvarnar í Meradölum. Leitað er að sex einstaklingum í fullt starf til áramóta með möguleika á framlengingu ef þörf verður á. 

Umhverfisstofnun hefur borist fjölmargar umsóknir um stöðu landvarðar við gosstöðvarnar í Meradölum. Leitað er að sex einstaklingum í fullt starf til áramóta með möguleika á framlengingu ef þörf verður á. 

Starfsauglýsingin birtist á heimasíðu Umhverfisstofnunar í gær en umsóknarfrestur rennur út 23. ágúst. 

Ásta Davíðsdóttir, yfirlandvörður á Suðvesturlandi, segir í samtali við mbl.is fjölda umsókna ekki koma á óvart miðað við fyrri reynslu, en í fyrra voru einnig ráðnir landverðir til að standa vaktina við eldgosið í Geldingardölum.

Helstu verkefni landvarðanna verður að gæta þess að ákvæðum náttúruverndarlaga sé fylgt, veita gestum upplýsingar og hafa eftirlit með akstri utan vega á svæðinu. Munu þeir því að einhverju leyti koma til með að létta und­ir með björg­un­ar­sveit­um.

mbl.is