Reykurinn sé ekki merki um nýja sprungu

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 17. ágúst 2022

Reykurinn sé ekki merki um nýja sprungu

Reykurinn sem kemur upp frá gosinu og dreifist þar í kring er að mestu leyti gas, að sögn Einars Hjörleifssonar, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

Reykurinn sé ekki merki um nýja sprungu

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 17. ágúst 2022

Myndin sýnir reyk koma upp frá gosinu í Meradölum.
Myndin sýnir reyk koma upp frá gosinu í Meradölum. mbl.is/Guðlaugur J. Albertsson

Reykurinn sem kemur upp frá gosinu og dreifist þar í kring er að mestu leyti gas, að sögn Einars Hjörleifssonar, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

Reykurinn sem kemur upp frá gosinu og dreifist þar í kring er að mestu leyti gas, að sögn Einars Hjörleifssonar, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

Mynd sem tekin var í gær, þriðjudag, sýnir reyk koma upp frá gosinu í Meradölum.

„Í austanverðum Meradalahnjúkum er áhugaverður reykur eða gufa sem líklegast er gas eða heitt loft að finna sér farveg upp með hlíðinni.

Nú er aðeins byrjað að rökkva á svæðinu og sjáum við ekki glóð þarna í fjallinu en við myndum sjá strax glóð þarna ef eitthvað væri að breytast,“ segir Einar.

Fylgjast með hvort hraun renni til austurs

Hann segir að virknin í gosinu sé svipuð og hún hefur verið undanfarna daga.

„Við fylgjumst með vefmyndavélum og erum að fylgjast með hvort hraunið fari í austur. Við erum með vefmyndavélar suðaustan við hraunið og fylgjumst með hvort það nái að renna í gegnum skarð sem er þar og erum mest að vakta það núna.“

Þá sé vel fylgst með gosóróanum, en ekki hefur orðið fall í honum að sögn Einars.

mbl.is