Íbúðum til sölu fjölgað um 52%

Húsnæðismarkaðurinn | 14. september 2022

Íbúðum til sölu fjölgað um 52%

Íbúðum til sölu hefur fjölgað hratt að undanförnu. Á höfuðborgarsvæðinu eru nú 1.067 íbúðir til sölu en í lok júlí voru þær 700 talsins. Því er um að ræða 52% aukningu. Þegar minnst var í byrjun febrúar voru þær aðeins 437 talsins.

Íbúðum til sölu fjölgað um 52%

Húsnæðismarkaðurinn | 14. september 2022

Húsnæði í Laugardalnum í Reykjavík.
Húsnæði í Laugardalnum í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi

Íbúðum til sölu hefur fjölgað hratt að undanförnu. Á höfuðborgarsvæðinu eru nú 1.067 íbúðir til sölu en í lok júlí voru þær 700 talsins. Því er um að ræða 52% aukningu. Þegar minnst var í byrjun febrúar voru þær aðeins 437 talsins.

Íbúðum til sölu hefur fjölgað hratt að undanförnu. Á höfuðborgarsvæðinu eru nú 1.067 íbúðir til sölu en í lok júlí voru þær 700 talsins. Því er um að ræða 52% aukningu. Þegar minnst var í byrjun febrúar voru þær aðeins 437 talsins.

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu hagdeildar HMS.

Um 53,4% íbúða á höfuðborgarsvæðinu seldust yfir ásettu verði í júlí samanborið við 62,2% í  júní og 65% þegar mest lét í maí.

Sérstaklega hefur dregið úr því að íbúðir seljist meira en 5% yfir ásettu verði og sér í lagi meðal íbúða í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu en í júlí seldust 14,8% íbúða þeirra svo mikið yfir ásettu verði á meðan hlutfallið var hæst 35,2% í apríl.

Meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu styttist aftur á milli mánaða í júlí frá fyrri mánuði úr 42,3 í 40,1 dag. Fram kemur að þróunin fari gegn öðrum mælikvörðum um ástand á  fasteignamarkaði en varast beri að lesa of mikið í það þegar kaupsamningum hefur fækkað svo mikið.

Stýrivextir voru hækkaðir um 0,75 prósentustig í lok júní og standa nú í 5,5%. Bankarnir hafa brugðist við með því að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum einnig um 0,75 prósentustig og eru þeir nú frá 7,4% hjá Íslandsbanka, 7,0% hjá Landsbankanum og 7,34% hjá Arion banka.

Í síðustu mánaðarskýrslu var fjallað um að fasteignamarkaðurinn sýndi fyrstu merki þess að hert peningastefna Seðlabankans væri farin að hafa áhrif á hann. Nú eru slík merki orðin skýrari en viðsnúningurinn hélt áfram í júní, segir í skýrslunni.

Kaupsamningum um íbúðarhúsnæði fækkaði nokkuð á milli mánaða, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu þar sem útgefnir kaupsamningar voru aðeins 378 talsins í júlí. Fjöldi kaupsamninga í einum mánuði hefur ekki verið jafn lítill síðan 2013, en  þó verður að setja þann fyrirvara að um bráðabirgðatölur er að ræða.

Mikil umsvif á byggingarmarkaði

Umsvif á byggingarmarkaði virðast vera í hæstu hæðum um þessar mundir. Velta á byggingarmarkaði ekki verið jafn mikil eins og á síðasta veltutímabili, maí til júní, frá því að mælingar hófust í upphafi árs 2008 ef miðað er við árstíðaleiðréttar tölur á föstu verðlag eða 77,5 milljarðar króna. 

Aðrir mælikvarðar gefa einnig til kynna mikil umsvif. Um 15.760 voru starfandi í byggingariðnaði í júlí miðað við  árstíðaleiðréttar tölur sem er litlu minna en í júní þegar fjöldinn var um 15.800. Fyrir utan júní hafa ekki fleiri verið starfandi í greininni síðan á haustmánuðum árið 2008. Þá eru mikill fjöldi nýskráðra  fyrirtækja í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og fjöldi gjaldþrota hafa ekki verið lægri frá upphafi mælinga í ársbyrjun 2008.

mbl.is