Prinsarnir ganga á eftir kistunni

Kóngafólk í fjölmiðlum | 14. september 2022

Prinsarnir ganga á eftir kistunni

Bretaprinsarnir Vilhjálmur og Harry munu ganga saman á eftir kistu Elísabetar Bretlandsdrottningar í London í dag.

Bræðurnir, ásamt föður þeirra Karli konungi, munu ganga frá Buckingham-höll til Westminster Hall þar sem kistan mun hvíla. Erkibiskupinn af Canterbury mun stjórna þar athöfn sem mun standa yfir í um 20 mínútur, að sögn BBC. 

Harry, Meghan, Vilhjálmur og Katrín virða fyrir sér blóm sem …
Harry, Meghan, Vilhjálmur og Katrín virða fyrir sér blóm sem almenningur lagði niður til að minnast Elísabetar. AFP/Kristy O´Connor.

Þrjú systkini konungsins, þau Anna prinsessa og prinsarnir Andrés og Játvarður munu einnig ganga á eftir kistunni.

Kamilla drottning og Katrín, prinsessa af Wales, munu ferðast á bíl ásamt hertogaynjunum Sophie og Meghan.

Fjöldi fólks hefur beðið í biðröð fyrir utan þinghúsið eftir því að fá að sjá kistuna.

Fjöldi fólks bíður við ána Thames skammt frá þinghúsinu.
Fjöldi fólks bíður við ána Thames skammt frá þinghúsinu. AFP/Alain Jocard
mbl.is