Vaxandi líkur á borgarastríði í Hvíta-Rússlandi

Hvíta-Rússland | 14. september 2022

Vaxandi spenna er nú í Hvíta-Rússlandi og óttast leyniþjónustur vestrænna ríkja í auknum mæli að borgarastríð brjótist út í landinu, jafnframt að slík átök kunni að smitast til nágrannaríkja.

Allt frá kosningunum 2020 í Hvíta-Rússlandi hefur Alexander Lúkasjenkó verið …
Allt frá kosningunum 2020 í Hvíta-Rússlandi hefur Alexander Lúkasjenkó verið háður stuðningi Rússa til að kveða niður mótmæli og andstöðu við stjórn hans. AFP

Vaxandi spenna er nú í Hvíta-Rússlandi og óttast leyniþjónustur vestrænna ríkja í auknum mæli að borgarastríð brjótist út í landinu, jafnframt að slík átök kunni að smitast til nágrannaríkja.

Vaxandi spenna er nú í Hvíta-Rússlandi og óttast leyniþjónustur vestrænna ríkja í auknum mæli að borgarastríð brjótist út í landinu, jafnframt að slík átök kunni að smitast til nágrannaríkja.

Innsti hringur Alexanders Lúkasjenkós forseta Hvíta-Rússlands er að búa sig undir átök við skæruliða en vopnaðir hvítrússneskir stjórnarandstæðingar, sem nú eru meðal annars í nágrannaríkjum eins og Póllandi, hafa ekki útilokað að hefja hefðbundna hernaðarsókn með stuðningi bandamanna sinna.

Innrás Rússlands í Úkraínu er sögð hafa ýtt undir þróun í þessa átt, en Rússland hefur haldið verndarhendi yfir Lúkasjenkó og einræðisstjórn hans.

Fjallað er ítarlega um málið í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is