Biden vottar Elísabetu virðingu sína

Kóngafólk í fjölmiðlum | 18. september 2022

Biden vottar Elísabetu virðingu sína

Joe Biden Bandaríkjaforseti er kominn til London þar sem hann mun votta Elísabetu Bretadrottningu virðingu sína í Westminster Hall.

Biden vottar Elísabetu virðingu sína

Kóngafólk í fjölmiðlum | 18. september 2022

Joe Biden gengur um borð í forsetaflugvélina í gær á …
Joe Biden gengur um borð í forsetaflugvélina í gær á leið til London. AFP/Brendan Smialowski

Joe Biden Bandaríkjaforseti er kominn til London þar sem hann mun votta Elísabetu Bretadrottningu virðingu sína í Westminster Hall.

Joe Biden Bandaríkjaforseti er kominn til London þar sem hann mun votta Elísabetu Bretadrottningu virðingu sína í Westminster Hall.

Biden verður síðan á meðal gesta í móttöku Karls konungs í Buckinghamhöll í kvöld, ásamt m.a. Naruhito Japanskeisara og íslensku forsetahjónunum.

Þúsundir manna hafa beðið í löngum biðröðum eftir því að fá að votta drottningunni virðingu sína, en útförin verður á morgun.

Almenningur minnist drottningarinnar í Westminster Hall.
Almenningur minnist drottningarinnar í Westminster Hall. AFP/Markus Schreiber

Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, hefur þegar séð kistu drottningarinnar í Westminster Hall, auk þess sem Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, var viðstödd athöfn í Buckinghamhöll í gær.

mbl.is