Hjálpa stressuðum að ná jafnvægi

Heilsurækt | 21. september 2022

Hjálpa stressuðum að ná jafnvægi

Ingibjörg Valgeirsdóttir, uppeldis-og menntunarfræðingur, er annar eigandi og þjálfari hjá fræðslufyrirtækinu Saga Story House en fyrirtækið rekur hún ásamt Guðbjörgu Björnsdóttur iðjuþjálfa. Hún er líka með MBA-gráðu. Báðar hafa þær lokið diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði sem og jógakennaranámi.

Hjálpa stressuðum að ná jafnvægi

Heilsurækt | 21. september 2022

Ingibjörg Valgeirsdóttir hjálpar fólki að vinna bug á streitunni.
Ingibjörg Valgeirsdóttir hjálpar fólki að vinna bug á streitunni. mbl.is/Hákon Pálsson

Ingibjörg Valgeirsdóttir, uppeldis-og menntunarfræðingur, er annar eigandi og þjálfari hjá fræðslufyrirtækinu Saga Story House en fyrirtækið rekur hún ásamt Guðbjörgu Björnsdóttur iðjuþjálfa. Hún er líka með MBA-gráðu. Báðar hafa þær lokið diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði sem og jógakennaranámi.

Ingibjörg Valgeirsdóttir, uppeldis-og menntunarfræðingur, er annar eigandi og þjálfari hjá fræðslufyrirtækinu Saga Story House en fyrirtækið rekur hún ásamt Guðbjörgu Björnsdóttur iðjuþjálfa. Hún er líka með MBA-gráðu. Báðar hafa þær lokið diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði sem og jógakennaranámi.

„Saga Story House er rúmlega þriggja ára hugmynd okkar Guðbjargar, þar sem við bjóðum upp á heilsueflandi námskeið og fyrirlestra fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við höfum báðar mikla reynslu af því að vinna með fólki úti í náttúrunni og þekkjum því vel áhrif náttúrunnar á líðan. Undanfarin þrjú ár höfum við farið með fólki út í náttúruna og núna erum við byrjaðar að fara með náttúruna inn til fólks,“ segir Ingibjörg.

Hvað áttu við með því?

„Við erum farnar að skapa heilsueflandi rými á vinnustöðum fyrir starfsfólk og viðskiptavini þar sem við styðjumst við hugmyndafræði iðjuþjálfunarfræða og jákvæðrar sálfræði um heilsueflandi vinnustaði og út frá áherslum Biophilic Design,“ segir hún.

Gömul viska mætir nýjum vísindum

Kyrrðarganga er námskeið í að læra að staldra við í náttúrunni.

„Í þessari hugmyndafræði mætist gömul viska og ný vísindi.

Rannsóknum á áhrifum náttúru á líðan fjölgar dag frá degi. Í gegnum aldirnar sjáum við hvað ganga hefur verið mannkyninu mikil heilsubót í víðtækri merkingu. Á göngu hefur fólk fengið andlega og líkamlega endurheimt, tengst innsæi sínu og visku, dýpkað þroska og virkjað sköpunarkraftinn. Við þekkjum orð eins og heilsubótargöngur og kyrrðargöngurnar eru í raun og veru akkúrat það. Við þekkjum vel hvað það getur verið gott að fara út í náttúruna en við gefum okkur ekki alltaf tíma til þess í hraða hversdagsins. Það getur því verið mjög styðjandi að fara á námskeið og vera í hóp til að tengjast náttúrunni og koma þessari góðu fyrirbyggjandi leið aftur inn í daglegt líf.

Við veljum fallegar náttúruperlur í kringum Hafnarfjörð og göngum í fjölbreyttri náttúru. Svo sem vatni, skógi, hafi, læk og hrauni. Þetta eru rólegar, leiddar núvitundargöngur, hæglætisgöngur, þar sem við leggjum áherslu á að hægja á og njóta náttúrunnar og áhrifa hennar á endurheimt, hvíld, slökun og innri ró.

Staldra við – náttúrunámskeið við streitu var fyrsta námskeiðið sem við settum á markað þegar við stofnuðum Sögu. Við ætluðum að hafa þetta sem sumarnámskeið en ásókn í námskeiðið hélt áfram allt árið sem kom okkur á óvart. Fólk er tilbúið til að koma með okkur út yfir mestu vetrarmánuðina, sem er oft mjög áhrifaríkt. Þetta námskeið varð því óvænt strax í boði alla mánuði, allan ársins hring. Í hverjum tíma byrjum við á heilsueflandi fræðslu, förum svo í kyrrðargöngu út í náttúruna og komum svo inn í djúpslökun,“ segir Ingibjörg.

Hjálpar fólki sem er undir miklu álagi

„Einstaklingar og starfsmannahópar koma til þess að efla vellíðan og jákvæða heilsu, fá verkfæri og læra fyrirbyggjandi leiðir til að hraði, álag og streita hafi ekki neikvæð áhrif á lífsgæði þeirra. Fólk kemur líka til okkar sem er að takast á við alvarlegar afleiðingar streitu á heilsu, til að mynda vegna áfalla, nýrra eða gamalla, ástvinamissis, heilsumissis, veikinda í fjölskyldu, skilnaða, atvinnumissis, álags og jafnvel kulnunar í starfi. Við höfum farið í yfir 500 kyrrðargöngur með hópa út í náttúruna síðan við byrjuðum og reynslan hefur verið mjög góð.“

Hákon Pálsson

Erum of oft að bíða eftir beinu brautinni

Enginn fer í gegnum lífið í stöðugu logni undir heiðskírum himni. Við þurfum að undirbúa okkur fyrir að lífið er alls konar og tala meira um það.

„Við erum kannski of oft að bíða eftir beinu brautinni, þægilega kaflanum. Höfum jafnvel sterkar væntingar um að núna sé þetta komið, að nú gangi allt vel. En lífið er eins og veðrið. Lífið er eins og náttúran og við erum hluti af henni. Hverfulleiki náttúrunnar endurspeglast til að mynda í daglegri líðan okkar. Tilfinningar koma og fara. Allt kemur og fer. Dagurinn, nóttin, árstíðirnar. Þess vegna er náttúran svo góður kennari okkar. Hún minnir okkur á að setja hlutina í stærra samhengi, minnir okkur á að við erum hluti af þessari risastóru heild.“

Af hverju ætli við lærum alltaf mest á sögum?

„Sögur eru hluti af arfleifð okkar, hluti af sögu okkar. Þær snerta við okkur tilfinningalega, auðvelda okkur að setja okkur í spor annarra og tengja við eigin reynslu. Þær geta því sest í tilfinningalegt minni okkar og dýpkað skilning, vitund, lærdóm og þroska. Það eru svo mikil tækifæri fólgin í að læra af eigin reynslu og annarra. Sagnahefðin er rík í okkar menningu og á námskeiðum okkar notum við töluvert það sem við köllum sögur, sem hjálpa okkur að bæta skilning okkar.

Á námskeiðunum okkar sköpum við farveg fyrir lærdóm þar sem kennslan getur birst víða. Hún birtist í einhverju af því sem við Guðbjörg segjum, hún birtist í rannsóknaniðurstöðum, hún birtist í lærdómssamfélaginu sem hver hópur er og hún birtist í náttúrunni. Mikilvægasta kennslan og mikilvægasti kennarinn er hins vegar þú sjálf(ur). Kennarinn hið innra. Öll svörin búa innra með þér. Við erum bara að skapa umgjörð fyrir þig til að staldra við, svo þú heyrir betur í þinni innri visku,“ segir hún.

Mikilvægt að tapa ekki jarðtengingunni

„Að tilheyra er hluti af grunnþörfum okkar. Náttúran er eitt og tengsl okkar við fólk er annað sem er okkur lífsnauðsynlegt. Einsemd er því miður víða orðin heilsuvá í vestrænum heimi. Við sjáum að fólk er með minna félagslegt þol eftir kórónuveirufaraldurinn. Jafnvel fólk sem var mjög félagslega virkt áður. Á námskeiðum og fyrirlestrum hjá okkur höfum við fjallað um mikilvægi tengsla. Mörg okkar hafa verið og erum að takast á við þessa breytingu á félagslegu þoli sem eru eðlileg viðbrögð í óeðlilegum aðstæðum. Við sjáum til að mynda að margir eiga erfitt með að mæta aftur á vinnustaði eftir að hafa unnið um hríð heima við. Í því samhengi skiptir máli fyrir vinnustaði að hlúa að heilsueflandi vinnuumhverfi og skapa nærandi, fjölbreytt rými sem styðja við mismunandi verkefni, vellíðan, endurheimt og starfsorku,“ segir hún.

Þurfum við einnig að passa hvað við borðum?

„Næring, fréttir og samfélagsmiðlar eru áhrifavaldar í daglegu lífi. Fjölbreytileiki í næringu eykst með hverjum degi og tæknin hefur stórkostleg áhrif á framfarir og lífsgæði. En þetta er að gerast mjög hratt, sem getur verið ruglingslegt. Við mannfólkið erum að læra að lifa með þessum afgerandi breytingum og erum að læra að finna jafnvægið. Við höfum trú á að við eigum eftir að ná betri tökum á þessu. En þegar kynslóðir ganga í gegnum svona miklar breytingar á jafn stuttum tíma, við þurfum ekki að horfa lengur en 100 ár aftur í tímann, þá er mikilvægt að tapa ekki tengslunum við náttúruna, tapa ekki jarðtengingunni.“

mbl.is