Hótun Pútíns setji heimsfrið í hættu

Úkraína | 21. september 2022

Hótun Pútíns setji heimsfrið í hættu

Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, hefur sakað Vladimír Pútín Rússlandsforseta um að stefna heimsfriði í hættu með því að hóta notkun kjarnavopna í stríðinu gegn Úkraínu.

Hótun Pútíns setji heimsfrið í hættu

Úkraína | 21. september 2022

Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins.
Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins. AFP/Ed Jones

Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, hefur sakað Vladimír Pútín Rússlandsforseta um að stefna heimsfriði í hættu með því að hóta notkun kjarnavopna í stríðinu gegn Úkraínu.

Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, hefur sakað Vladimír Pútín Rússlandsforseta um að stefna heimsfriði í hættu með því að hóta notkun kjarnavopna í stríðinu gegn Úkraínu.

Borrell sagði stöðuna grafalvarlega og að hótun forsetans væri óásættanleg og raunveruleg ógn við alla. „Alþjóðasamfélagið verður að standa saman og koma í veg fyrir slíka aðgerð. Heimsfriður er í hættu.“

Vladimír Pútín ávarpaði rússnesku þjóðina í morgun þar sem hann tilkynnti m.a. um herkvaðningu. Stend­ur til að virkja 300 þúsund manna varalið.

Þá sagði Pútín einnig að Moskva myndi beita öllum tiltækum ráðum til að vernda land og þjóð

mbl.is