„Brennið í helvíti“

Úkraína | 30. september 2022

„Brennið í helvíti“

Að minnsta kosti 23 létust og 28 særðust þegar rússneskir hermenn skutu á bílalest sem var að flytja almenna borgara í mannúðlegum tilgangi í Sa­porisjía í suðurhluta Úkraínu.

„Brennið í helvíti“

Úkraína | 30. september 2022

Rússneskur hermaður stendur vörð fyrir framan kjarnorkuverið í Saporisjía.
Rússneskur hermaður stendur vörð fyrir framan kjarnorkuverið í Saporisjía. AFP

Að minnsta kosti 23 létust og 28 særðust þegar rússneskir hermenn skutu á bílalest sem var að flytja almenna borgara í mannúðlegum tilgangi í Sa­porisjía í suðurhluta Úkraínu.

Að minnsta kosti 23 létust og 28 særðust þegar rússneskir hermenn skutu á bílalest sem var að flytja almenna borgara í mannúðlegum tilgangi í Sa­porisjía í suðurhluta Úkraínu.

Þetta staðfesti Oleksandr Starúk, sem fer fyrir úkraínska hernum í héraðinu.

„Í augnablikinu vitum við um 23 látna og 28 særða. Allt almennir borgar, heimamenn. Brennið í helvíti, helvítis Rússar,“ skrifaði Starúk á samskiptamiðlinum Telegram.

Rússar kenna Úkraínumönnum um

Fulltrúi Kremlar í Sa­porisjía sagði úkraínska hermenn en ekki rússneska standa að baki árásinni. 

„Ríkisstjórnin í Kænugarði er að reyna að lýsa því sem gerðist sem skotárás rússneskra hermanna og grípa til svívirðilegrar ögrunar“ sagði Vladimír Rogóv á Telegram.

„Úkraínskir bardagamenn frömdu enn eitt hryðjuverkið,“ bætti hann við.

mbl.is