Nær öllu innanlandsflugi aflýst

Óveður í október 2022 | 9. október 2022

Nær öllu innanlandsflugi aflýst

Búið er að aflýsa nær öllu innanlandsflugi í dag, þar á meðal flugferðum til og frá Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði. Þá hefur ferðum til og frá Bíldudal einnig verið aflýst.

Nær öllu innanlandsflugi aflýst

Óveður í október 2022 | 9. október 2022

Flug frá Reykjavíkurflugvelli til Hornafjarðar er enn á áætlun.
Flug frá Reykjavíkurflugvelli til Hornafjarðar er enn á áætlun. mbl.is/Sigurður Bogi

Búið er að aflýsa nær öllu innanlandsflugi í dag, þar á meðal flugferðum til og frá Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði. Þá hefur ferðum til og frá Bíldudal einnig verið aflýst.

Búið er að aflýsa nær öllu innanlandsflugi í dag, þar á meðal flugferðum til og frá Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði. Þá hefur ferðum til og frá Bíldudal einnig verið aflýst.

Rauðar veðurviðvaranir eru í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og á Suðausturlandi. 

Þá hefur Suðurland verið hækkað af óvissustigi yfir á hættustig almannavarna.

Flug frá Reykjavíkurflugvelli til Hornafjarðar klukkan 14 er þó enn á áætlun, en sökum veðurs er ekki ólíklegt að því verði einnig aflýst.

mbl.is