Rufu útsendingu ríkissjónvarpsins

Mótmæli í Íran | 9. október 2022

Rufu útsendingu ríkissjónvarpsins

Myndband, sem sýndi hvíta grímu, og svo í kjölfarið, mynd af Ali Khamenei, leiðtoga Íran, umlykinn ljósum logum, rauf útsendingu ríkissjónvarps í Íran í gær.

Rufu útsendingu ríkissjónvarpsins

Mótmæli í Íran | 9. október 2022

Hvít gríma birtist á skjánum á miðjum kvöldfréttartíma.
Hvít gríma birtist á skjánum á miðjum kvöldfréttartíma. skjáskot af myndbandi

Myndband, sem sýndi hvíta grímu, og svo í kjölfarið, mynd af Ali Khamenei, leiðtoga Íran, umlykinn ljósum logum, rauf útsendingu ríkissjónvarps í Íran í gær.

Myndband, sem sýndi hvíta grímu, og svo í kjölfarið, mynd af Ali Khamenei, leiðtoga Íran, umlykinn ljósum logum, rauf útsendingu ríkissjónvarps í Íran í gær.

Að baki verknaðinum stóð hópur sem kallar sig „Adalat Ali“, eða „Ali réttlætisins.“ 

Er þetta þáttur í mótmælunum sem geisa í Íran um þessar mundir, og brutust út eftir að ung kona, að nafninu Mahsa Amini, lét lífið eftir pyntingar af hálfu lögreglu, fyrir að hylja ekki allt hár sitt með hijab-slæðu. 

Hvöttu fólk til að rísa upp

Þrír mótmælendur léti lífið nýlega eftir að til átaka kom milli þeirra og lögreglu. Myndir af þeim látnu birtust einnig í umræddu myndbandi, bæði Ahmini og mótmælendunum. Þá voru myndir af leiðtoganum með skotmark á höfði sér. 

Með myndabandinu var fólk hvatt til að rísa upp og ganga til liðs við mótmælendurna. „Blóð ungdómsins okkar drýpur úr lófum ykkar.“

Myndbandið náði spilun í nokkrar sekúndur, klukkan sex í gærkvöldi, uns ríkissjónvarpið náði tökum á dagskránni á ný. Hér má sjá myndbandið. 

mbl.is