Instagram: Hálfber eins og Borat í stormviðvörun

Áhrifavaldar | 10. október 2022

Instagram: Hálfber eins og Borat í stormviðvörun

Vikan var hressandi á Instagram. Það var örlítill vetur í fólki nema náttúrlega hjá þeim sem búa í Kaliforníu eða voru erlendis í vikunni. 

Instagram: Hálfber eins og Borat í stormviðvörun

Áhrifavaldar | 10. október 2022

Það leit einna helst út fyrir að vera sumar þegar …
Það leit einna helst út fyrir að vera sumar þegar skrollað var niður Instgram í vikunni. Skjáskot/Instgram

Vikan var hressandi á Instagram. Það var örlítill vetur í fólki nema náttúrlega hjá þeim sem búa í Kaliforníu eða voru erlendis í vikunni. 

Vikan var hressandi á Instagram. Það var örlítill vetur í fólki nema náttúrlega hjá þeim sem búa í Kaliforníu eða voru erlendis í vikunni. 

Tekið á því í ræktinni!

Bára Jónsdóttir æfir af kappi þessa dagana eins og sést á myndinni. 

Stórkostlegar!

Vinkonurnar Áslaug Hulda Jónsdóttir og Inga Lind Karlsdóttir voru veislustjórar á Kvennakvöldi Stjörnunnar. Þær sáu til þess að engum leiddist! 

Beverly Hills-lífið! 

Bergsveinn Ólafsson, eða Beggi Ólafs eins og hann er kallaður, er um þessar mundir búsettur í Kaliforníu þar sem hann stundar nám. Á meðan haustlægðir mokuðust yfir Ísland naut hann sólarinnar í Beverly Hills. 

Brúðkaupsferð! 

Arnar Gauti Sverrisson og Berglind Sif Valdemarsdóttir gengu í hjónaband í sumar og eru nú komin til Grikklands í brúðkaupsferð. 

Borat eða Tanja?

At­hafna­kon­an og áhrifa­vald­ur­inn Tanja Ýr Ástþórs­dótt­ir skellti sér nýlega á ströndina í óvenjulegum fatnaði. Strandfatnaðurinn var eiturgrænn eins og gallinn sem Borat klæddist um árið. Hvort þeirra klæddist gallanum betur?

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

Geggjuð pósa!

Sigríður Margrét áhrifavaldur og fyrirsæta pósaði í gallajakka um helgina. 

Viltu breyta sambandi þínu við peninga?

Linda Pétursdóttir er að spá í peningum þessa dagana. „Ef fjárhagsáhyggjur eru þér alltaf ofarlega í huga eru líkur á að þessar hugsanir endurspegli fjárhagslegu stöðuna þína nú. Hugsanir þínar móta sjálfsmyndina og raunveruleika þinn. Í stuttu máli: Við erum það sem við trúum um okkur.

Ef þú trúir því að þú getir ekki eignast peninga og eigir aldrei nóg, býr hugur þinn til þann raunveruleika. Þess vegna eru til ótal mörg dæmi þess að fólk vinni stórar upphæðir í lottói og endi svo með því að tapa því öllu af því að það hafði í raun ekki trú á að það gæti átt peninga,“ segir Linda á Instagram. 

Allt í gangi!

Tónlistarmaðurinn Aron Can pósaði í slitnum gallabuxum og íþróttapeysu í Amsterdam. 

Spa dagur!

Kristín Pétursdóttir leikkona, flugfreyja og áhrifavaldur lét þreytuna líða úr sér. 

Taíland baby! 

Helgi Ómarsson áhrifavaldur er staddur á Taílandi í Asíu um þessar mundir. 

Hjón með alvöru stæl!

Tónlistarmaðurinn Emm­sjé Gauti giftist sinni heittelskuðu Jov­önu Schully í sumar. Gauti birti brúðkaupsmynd af sér og Jovönu um helgina og má með sanni segja að hjónabandið fari rapparanum vel. 

Kveðja úr Múmíndalnum!

Alexandra Sif Nikulásdóttir komst í sérstaka múmínálfaverslun erlendis. 

Vinir í öllu sínu veldi! 

Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi Kíró eins og hann er kallaður, birti mynd af sér og vinum sínum en myndin var tekin í París á dögunum. 

Ástarjátning Bríetar! 

Söngkonan Bríet birti mynd af sér og kærastanum, Rubin Pollock, og sagði heiminum að hann væri besta bíómynd sem hún hefði horft á. 

View this post on Instagram

A post shared by BRÍET (@brietelfar)

Drottning í eigin heimi!

„Þetta er minn heimur og þú býrð bara í honum,“ skrifaði Helga Margrét laganemi og áhrifavaldur. Hún birti í leiðinni skvísumyndir af sér eins og henni er einni lagið. 

mbl.is