Bréf Icelandair niður um 4% eftir uppgjör

Sviptivindar í flugrekstri | 21. október 2022

Uppgjör Icelandair var birt í gær, en það sýndi 7,7 milljarða króna hagnað á þriðja ársfjórðungi. Þá hafa farþegatekjur aldrei verið hærri á stökum fjórðungi, eða 54,1 milljarður og sætanýting á þriðja ársfjórðungi aldrei betri.

Bréf Icelandair hafa lækkað í viðskiptum í dag eftir uppgjör …
Bréf Icelandair hafa lækkað í viðskiptum í dag eftir uppgjör gærdagsins.

Uppgjör Icelandair var birt í gær, en það sýndi 7,7 milljarða króna hagnað á þriðja ársfjórðungi. Þá hafa farþegatekjur aldrei verið hærri á stökum fjórðungi, eða 54,1 milljarður og sætanýting á þriðja ársfjórðungi aldrei betri.

Uppgjör Icelandair var birt í gær, en það sýndi 7,7 milljarða króna hagnað á þriðja ársfjórðungi. Þá hafa farþegatekjur aldrei verið hærri á stökum fjórðungi, eða 54,1 milljarður og sætanýting á þriðja ársfjórðungi aldrei betri.

Þetta virðist hins vegar ekki hafa uppfyllt væntingar markaðarins því bréf félagsins hafa lækkað um tæplega 4% við upphaf viðskipta í morgun og leiðir félagið lækkanir í Kauphöllinni.

Samtals hafa átt sér stað viðskipti með rúmlega 100 milljónir, en gengi bréfanna er nú 1,86 krónur á hlut.

Flest önnur félög hafa einnig lækkað, meðal annars Marel um 3% og Sjóvá um 2,5%.Önnur félög um minna en 2%. Aðeins bréf í Íslandsbanka hafa hækkað, eða um 1%.

mbl.is