Fimm milljónir í öryggismál ferðamanna

Ferðamenn á Íslandi | 21. október 2022

Fimm milljónir í öryggismál ferðamanna

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu fimm milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu vegna endurgerðar á vegnum safetravel.is, en vefurinn hefur verið helsti upplýsingavefur almannavarna til að koma mikilvægum skilaboðum til ferðamanna, t.d. vegna óveðurs, ófærðar eða náttúruhamfara.

Fimm milljónir í öryggismál ferðamanna

Ferðamenn á Íslandi | 21. október 2022

Landsbjörg fær fimm milljónir til að uppfæra safetravel.is upplýsingasíðuna.
Landsbjörg fær fimm milljónir til að uppfæra safetravel.is upplýsingasíðuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu fimm milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu vegna endurgerðar á vegnum safetravel.is, en vefurinn hefur verið helsti upplýsingavefur almannavarna til að koma mikilvægum skilaboðum til ferðamanna, t.d. vegna óveðurs, ófærðar eða náttúruhamfara.

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu fimm milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu vegna endurgerðar á vegnum safetravel.is, en vefurinn hefur verið helsti upplýsingavefur almannavarna til að koma mikilvægum skilaboðum til ferðamanna, t.d. vegna óveðurs, ófærðar eða náttúruhamfara.

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að mikilvægi slysavarna ferðamanna hafi aukist á undanförnum árum samhlið fjölgun þeirra. Því sé endurgerð vefsins brýn til að auka upplýsingamiðlun og til þess að leita leiða til að ná til þeirra sem fara um landið.

Landsbjörg mun áfram vinna verkefnið í samstarfi við fyrirtæki í ferðaþjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar, Samgöngustofu, Veðurstofuna og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

mbl.is