Vill framleiða „sterkari sólarvörn fyrir rauðhærða“

Sólarlandaferðir | 21. október 2022

Vill framleiða „sterkari sólarvörn fyrir rauðhærða“

Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran vill setja á markað sína eigin sólarvörn með sólarvarnarstuðul 70, en með því vill hann auka úrval af sterkri sólarvörn fyrir fólk með ljósa húð og rautt hár. 

Vill framleiða „sterkari sólarvörn fyrir rauðhærða“

Sólarlandaferðir | 21. október 2022

Tónlistamaðurinn Ed Sheeran vill framleiða sólarvörn með sterkari stuðli fyrir …
Tónlistamaðurinn Ed Sheeran vill framleiða sólarvörn með sterkari stuðli fyrir fólk með ljósa og viðkvæma húð. Skjáskot/Instagram

Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran vill setja á markað sína eigin sólarvörn með sólarvarnarstuðul 70, en með því vill hann auka úrval af sterkri sólarvörn fyrir fólk með ljósa húð og rautt hár. 

Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran vill setja á markað sína eigin sólarvörn með sólarvarnarstuðul 70, en með því vill hann auka úrval af sterkri sólarvörn fyrir fólk með ljósa húð og rautt hár. 

Í færslu sinni á Instagram sagðist Sheeran þakka guði fyrir sólarvörn með stuðli upp á 50, en á myndinni er hann staddur í sundlaug í sólarlandi. Nú vill hann auka úrval af hærri sólarvarnarstuðlum á markaðinum. 

Í samtali við The Mirror sagði Sheeran ljóst yfirbragð sitt klárlega vinna sér í haginn markaðslega séð, en hann vill hafa andlit sitt á umbúðunum. „Þú myndir kaupa sólarvörn ef andlit mitt væri á umbúðunum vegna þess að þú myndir hugsa: „Hann veit örugglega hvað hann er að tala um“,“ sagði söngvarinn. 

AFP

Ljós húð viðkvæmari

Hæst fer stuðull sólarvarnar upp í 100 og útilokar þá 99% UVB-geisla, sem eru útfjólubláir geislar með stutta bylgjulengd. Hins vegar eru það líka UVB-geislarnir sem eru nauðsynlegir fyrir myndun D-vítamíns í húðinni, en þeir valda líka, ásamt UVA-geislum, skemmdum á húð sem geta leitt til húðkrabbameins til lengdar. 

Það er vitað að ljós húð brennur hraðar í sólinni en dekkri húð, en eftir því sem húðin er viðkvæmari fyrir sól þeim mun mikilvægara er að vernda hana með sólarvörn. 

mbl.is