Aftur í sviðsljósið eftir gæsluvarðhald og barneignir

Fatastíllinn | 27. október 2022

Tónlistarparið Rihanna og A$AP Rocky sneru aftur á rauða dregilinn í Los Angeles á miðvikudagskvöldið þegar kvikmyndin Black Panther: Wakanda Forever var frumsýnd. Parið var í samstæðum fötum, en mikið hefur gengið á í lífi þeirra undanfarna mánuði.

Rihanna og A$AP Rocky sneru aftur í sviðsljósið í vikunni.
Rihanna og A$AP Rocky sneru aftur í sviðsljósið í vikunni. AFP

Tónlistarparið Rihanna og A$AP Rocky sneru aftur á rauða dregilinn í Los Angeles á miðvikudagskvöldið þegar kvikmyndin Black Panther: Wakanda Forever var frumsýnd. Parið var í samstæðum fötum, en mikið hefur gengið á í lífi þeirra undanfarna mánuði.

Tónlistarparið Rihanna og A$AP Rocky sneru aftur á rauða dregilinn í Los Angeles á miðvikudagskvöldið þegar kvikmyndin Black Panther: Wakanda Forever var frumsýnd. Parið var í samstæðum fötum, en mikið hefur gengið á í lífi þeirra undanfarna mánuði.

Lag myndarinnar, Lift Me Up, er eftir Rihönnu og kemur það formlega út á morgun, föstudag. Er það fyrsta lagið sem hún gefur út síðan 2016 þegar plata hennar Anti kom út.

Rihanna og A$AP Rocky eignuðust sitt fyrsta barn í maí á þessu ári og hafa þau haldið sig til hlés síðustu mánuði. Þá var hann handtekinn á flugvellinum í Los Angeles í apríl fyrr á þessu ári en losnaði gegn tryggingargjaldi skömmu síðar. 

Var hann handtekinn í tengslum við skotárás sem varð í Hollywood undir lok síðasta árs. Á hann yfir höfði sér níu ára fangelsisdóm verði hann fundinn sekur. 

Rihanna geislaði eins og demantur á rauða dreglinum í pallíettukjól frá Rick Owens 

Parið eignaðist son í maí á þessu ári.
Parið eignaðist son í maí á þessu ári. AFP
Rihanna var í kjól frá Rick Owens.
Rihanna var í kjól frá Rick Owens. AFP
mbl.is