Húsmóðir sem heldur framhjá

Samskipti kynjanna | 29. október 2022

Húsmóðir sem heldur framhjá

Ástrík eiginkona og móðir elskar að halda framhjá með ókunnugum körlum. Hún hefur verið gift í tuttugu ár og hefur átta sinnum átt í framhjáhaldi.

Húsmóðir sem heldur framhjá

Samskipti kynjanna | 29. október 2022

Kynlífið hefur aldrei verið betra hjá þessari þreyttu húsmóður.
Kynlífið hefur aldrei verið betra hjá þessari þreyttu húsmóður. Ljósmynd/Unsplash/We-Vibe Toys

Ástrík eiginkona og móðir elskar að halda framhjá með ókunnugum körlum. Hún hefur verið gift í tuttugu ár og hefur átta sinnum átt í framhjáhaldi.

Ástrík eiginkona og móðir elskar að halda framhjá með ókunnugum körlum. Hún hefur verið gift í tuttugu ár og hefur átta sinnum átt í framhjáhaldi.

Konan sem er 44 ára segist, í viðtali við The Daily Mail, lifa fyrir spennuna.

„Ég er háð þessu bannaða kynlífi rétt eins og keðjureykjandi einstaklingur er háður sígarettunum sínum.“

„Á mér eru tvær hliðar. Ein hliðin er ástrík eiginkona sem elskar fjölskyldu sína afar heitt. Hin hliðin er kona með kynhvöt og elskar að sofa hjá einhverjum nýjum.“

Konan segist ekki vanta ástúð í hjónabandinu heldur segir hún ástæðuna vera djúpstæða löngun í spennu.

Sefur hjá ókunnugum fyrir spennuna

„Ég sef með öðrum körlum bara fyrir spennuna. Þetta er ákveðinn innspýting í annars mjög venjulega tilveru mína. Ég vil aldrei fara frá eiginmanninum, en tilhugsunin um að sofa aðeins hjá honum allt mitt líf gerir mig þunglynda.“ 

„Ég nýt mjög kynlífsins með eiginmanninum. Við elskumst flestar vikur og erum náin, andlega og líkamlega.“

„Jafnvel þótt hjónabandið væri án kynlífs þá væri þetta samt ekki honum að kenna. Þetta er mín ákvörðun sem ég tók þrátt fyrir að vita að ef hann kæmist að þessu myndi það nísta hjarta hans inn að beini.“

Alltaf verið að góla á sig

Konan bendir á að það að verða eiginkona og móðir breytir um leið samskiptum við makann.

„Heima er alltaf verið að góla á mig af mikilli neyð. Oftast er það eiginmaðurinn sem finnur ekki hinn sokkinn. Annars er það unglingurinn sem þarf skutl í bæinn eftir að hafa misst af strætó.“

Konan hefur átta sinnum haldið framhjá og í fjögur skipti voru þetta sambönd sem stóðu yfir í nokkra mánuði í senn. Fyrsta framhjáhaldið var þegar dóttirin var fjögurra ára. 

Menn gáfu henni gaum í ræktinni

„Ég hafði ákveðið að setja mig í fyrsta sæti og hlúa betur að mér. Ég fór mikið í ræktina og þar tók ég eftir því að karlmenn voru að veita mér eftirtekt. Smátt fór ég að dagdreyma um þá. Stuttu síðar stakk einn upp á að við færum saman í drykk.“

„Það kom mér á óvart hversu auðvelt það var fyrir mig að segja já. Ég hugsaði aldrei um eiginmanninn. Þetta var algjörlega aðskilið mínu hefðbundna lífi. Og ég vildi meira.“

„Mér leið ungri aftur. Ég hafði verið svo föst í heimilishaldinu að ég var búin að gleyma hversu spennandi lífið gæti verið.“

„Í hvert sinn segi ég að þetta sé síðasta skipti sem ég held framhjá. En það er aldrei svo.“

mbl.is