Dreymir um sjóðandi heitt kynlíf með fyrrverandi

Samskipti kynjanna | 3. nóvember 2022

Dreymir um sjóðandi heitt kynlíf með fyrrverandi

Karlmaður sem er fyrir afbrigðilegt kynlíf íhugar að hætta með ástinni í lífi sínu því kynlífið er svo leiðinlegt. Hann dreymir um að byrja aftur með fyrrverandi kærustu sinni til þess að hleypa aftur spennu í kynlífið. 

Dreymir um sjóðandi heitt kynlíf með fyrrverandi

Samskipti kynjanna | 3. nóvember 2022

Konan vill bara stunda trúboðann inni í herbergi.
Konan vill bara stunda trúboðann inni í herbergi. Pexels/WR

Karlmaður sem er fyrir afbrigðilegt kynlíf íhugar að hætta með ástinni í lífi sínu því kynlífið er svo leiðinlegt. Hann dreymir um að byrja aftur með fyrrverandi kærustu sinni til þess að hleypa aftur spennu í kynlífið. 

Karlmaður sem er fyrir afbrigðilegt kynlíf íhugar að hætta með ástinni í lífi sínu því kynlífið er svo leiðinlegt. Hann dreymir um að byrja aftur með fyrrverandi kærustu sinni til þess að hleypa aftur spennu í kynlífið. 

„Ætti ég að hætta með ástinni í lífi mínu til að uppfylla þörf mína fyrir afbrigðilegu kynlífi með fyrrverandi kærustu minni? Mig dreymir um trekant og kynlíf á opinberum stöðum en kærastan mín vill bara stunda kynlíf í trúboðastellingunni. Í rúminu.

Við erum búin að vera saman í þrjú ár og við erum farin að tala um hjónaband og barneignir. Ég er 32 ára og hún 29 ára.

Við eigum margt sameiginlegt, ég dýrka hana, hún er gáfuð, góð og yndisleg. Svona kona sem allir karlmenn vilja kynna móður sína fyrir. Ég elska allt við hana, fyrir utan smekk hennar á kynlífi sem er að gera mig algjörlega bilaðan.

Áður en ég kynntist henni þá var ég í stuttu sambandi með 34 ára konu sem deildi smekk mínum á afbrigðilegu kynlífi. Hún elskaði að stunda hópkynlíf, var með strípihneigð og til í bindingar. Hún var meira að segja til í að stunda kynlíf á opinberum stað. Það var ekkert sem hún vildi ekki gera. Hún var líka til í að leyfa vinum mínum að fylgjast með okkur stunda kynlíf í gegnum netið.

En, við vorum betri í svefnherberginu heldur en utan þess, og ég sá ekki framtíð fyrir mér með henni. Vandamálið er bara að kynlífið er svo leiðinlegt með kærustunni minni að ég get ekki hætt að hugsa um fyrrverandi. Hún er sú sem ég hugsa um þegar ég fróa mér.

Ég veit að hún hefur enn áhuga á mér og ég er að pæla hvort ég eigi að hitta hana í leyni til að reyna að hrista þetta af mér.

Eða kannski ætti ég að hætta með kærustunni minn og gefa fyrrverandi annan séns. Ég er búinn að segja kærustunni minni hvað kveikir í mér og hún hlær annaðhvort að mér eða segir þvert nei.

Einhverjum finnst það klikkun að fórna svona góðu langtímasambandi fyrir kynlíf, en ég get ekki hugsað um neitt annað.“

Ráðgjafinn svarar:

„Eins og þú hefur áttað þig á, þá er ekki hægt að neyða neinn í að gera eitthvað í svefnherberginu. Þú gætir hvatt hana til að vera aðeins frjálsari, en miðað við reynslu þína þá myndi það ekki halda athygli þinni lengi. 

Nú þarft þú að gera upp hug þinn. Annaðhvort verður þú með kærustunni og stundar óspennandi kynlíf, upplifir pirring eða hættir með henni og finnur þér einhverja aðra. Kannski fyrrverandi kærustuna þína, eða einhverja aðra, sem vill stunda eins kynlíf og þú. 

Ekki halda framhjá, það mun bara skapa fleiri vandamál. 

Kynlíf er kannski ekki mikilvægasti hluti sambandsins, en það er samt mikilvægur hluti í samböndum. Fyrst smekkur ykkar er svo ólíkur, þá er ólíklegt að þetta samband endist langt inn í framtíðina. 

Þú þarft að tala við kærustuna þína og útskýra fyrir henni hvernig þér líður, jafnvel þótt þið hættið saman í kjölfarið. 

Það er sorglegt, en ekki ganga öll sambönd upp, og kannski er tími þessa sambands liðinn. En ef þið getið talað um þetta eins og fullorðið fólk, þá getið þið kannski verið vinir.“

mbl.is