81,9% sætanýting í október hjá Play

Flugfélagið Play | 7. nóvember 2022

81,9% sætanýting í október hjá Play

Play flutti 91.940 farþega í október og sætanýting var 81,9%, samborið við 81,5% í september. Um 35 % voru farþegar á leið frá Íslandi, 28,5% voru farþegar á leið til Íslands og 36,3% voru tengifarþegar.

81,9% sætanýting í október hjá Play

Flugfélagið Play | 7. nóvember 2022

Tæplega 92 farþegar ferðuðust með Play í október.
Tæplega 92 farþegar ferðuðust með Play í október. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Play flutti 91.940 farþega í október og sætanýting var 81,9%, samborið við 81,5% í september. Um 35 % voru farþegar á leið frá Íslandi, 28,5% voru farþegar á leið til Íslands og 36,3% voru tengifarþegar.

Play flutti 91.940 farþega í október og sætanýting var 81,9%, samborið við 81,5% í september. Um 35 % voru farþegar á leið frá Íslandi, 28,5% voru farþegar á leið til Íslands og 36,3% voru tengifarþegar.

Í tilkynningu frá Play segir að almenn eftirspurn frá farþegum til Íslands hafi verið minni en búast mátti við á síðustu mánuðum þar sem mörg hótel hafi verið uppbókuð og sömuleiðis bílaleigubílar. Það hafi haft í för með sér fleiri tengifarþega í stað farþega til Íslands, sem skili minni tekjum. 

Þar segir enn fremur að Play sjái nú aukna eftirspurn meðal farþega á leið til landsins á næstu mánuðum þar sem íslensk ferðaþjónusta hafi talsvert meira svigrúm til að taka við farþegum. 

Inneignum ferðamanna hjá öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum, sem fengust höfðu í faraldrinum og nýttar voru í miklum mæli á þessu ári, hefur fækkað til muna. Ferðamálastofa spáir um 40% fleiri farþegum til landsins árið 2023 miðað við 2022 og Play sér ört vaxandi bókunarflæði til landsins inn í veturinn og næsta ár.

Stundvísi 95,4% í október

„Í síðustu viku kynntum við ársfjórðungsuppgjör Play fyrir þriðja ársfjórðung 2022 og lít ég á það sem sannkallað afrek að svo ungt fyrirtæki nái rekstrarhagnaði við þær ytri aðstæður sem við höfum stafað við. Meirihluti áfangastaða okkar var glærnýr í leiðakerfinu og vörumerki Play því að mestu óþekkt á mörkuðum. Sætanýtingin á þriðja ársfjórðungi var 85% sem er mjög ásættanlegt og við búumst við góðri sætanýtingu næstu mánuði.

Það er líka mjög jákvætt að við erum þegar farin að sjá fjölgun farþega til Íslands á næstu mánuðum. Okkar magnaði hópur starfsmanna er kominn á fullt við að undirbúa það að færa enn út kvíarnar. Við erum að ráða fólk, fjórar flugvélar eru á leið til okkar og nýir áfangastaðir eru að bætast við. Ég lít spenntur til framtíðar því Play er að verða sterkt og arðbært lággjaldaflugfélag með vaxandi tekjugrunn og ánægða viðskiptavini,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play.

mbl.is