Trump „æfur og öskrar á alla“

Kosningar í Bandaríkjunum 2022 | 9. nóvember 2022

Trump „æfur og öskrar á alla“

Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera „æfur og öskra á alla“ eftir gengi Repúblikanaflokksins í þing­kosn­ing­un­um vestanhafs í gær. 

Trump „æfur og öskrar á alla“

Kosningar í Bandaríkjunum 2022 | 9. nóvember 2022

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna. AFP/Joe Raedle/Getty Images

Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera „æfur og öskra á alla“ eftir gengi Repúblikanaflokksins í þing­kosn­ing­un­um vestanhafs í gær. 

Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera „æfur og öskra á alla“ eftir gengi Repúblikanaflokksins í þing­kosn­ing­un­um vestanhafs í gær. 

Þetta hefur CNN eftir ráðgjafa Trumps sem gagnrýnir Trump fyrir hvaða frambjóðendur flokksins hann studdi í lykilríkjum. 

Ráðgjafinn telur ólíklegt að Trump muni fresta því að tilkynna forsetaframboð sitt þar sem það væri „of niðurlægjandi til að tefja það“. Hann bætti þó við að enn væri margt óráðið. 

Mesta tap repúblikana þessar kosningarnar fólst í því að demókratinn John Fetterm­an var kjörinn öld­unga­deild­arþingmaður Penn­sylvan­íu-ríkis. Trump hafði stutt repúblikanann Meh­met Oz en framboð Fettermans útmálaði hann sem mold­rík­an tæki­færissinna frá New Jers­ey, sem lít­il tengsl hafi við ríkið og sömu­leiðis lít­il tengsl við al­menna borg­ara.

Helsti keppinautur Trump til að verða forsetaframboðsefni repúblikana í kosningunum árið 2024 er talinn vera Ron DeS­ant­is, rík­is­stjóri Flórída. Hann hefur þó, líkt og Trump, ekki formlega lýst yfir framboði.

mbl.is