70% íbúa Kænugarðs án rafmagns

Úkraína | 24. nóvember 2022

70% íbúa Kænugarðs án rafmagns

Um 70% íbúa Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, voru án rafmagns í morgun.

70% íbúa Kænugarðs án rafmagns

Úkraína | 24. nóvember 2022

Víða hefur snjóað mikið og er hitastig við frostmark.
Víða hefur snjóað mikið og er hitastig við frostmark. AFP/Bulent Kilic

Um 70% íbúa Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, voru án rafmagns í morgun.

Um 70% íbúa Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, voru án rafmagns í morgun.

BBC greinir frá því að árásir Rússa á úkraínsk orkuver hafa leitt til rafmagnsleysis á mörgum svæðum í ríkinu, en víða hefur snjóað mikið og er hitastig við frostmark. 

Volodimír Selenskí, for­seti Úkraínu, greindi frá því að 70 rússneskum flugskeytum hafi verið skotið á Úkraínu í gær. Tíu létust og þremur kjarnorkuverum var lokað. Þau verða opnuð aftur síðar í dag.  

Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, sagði í yfirlýsingu að orkufyrirtæki vinni nú að því að koma aftur á rafmagni í borginni. 

mbl.is