Fagnar afmælinu með stæl í Tókýó

Frægir ferðast | 25. nóvember 2022

Fagnar afmælinu með stæl í Tókýó

Fyrirsætan Hailey Bieber fagnaði nýju aldursári með sannkallaðri afmælisviku í Tókýó í Japan. Hún hefur verið dugleg að deila myndum frá vikunni á samfélagsmiðlum, en með henni fögnuðu eiginmaður hennar, Justin Bieber og vinkona hennar, Kendall Jenner. 

Fagnar afmælinu með stæl í Tókýó

Frægir ferðast | 25. nóvember 2022

Hailey Bieber fagnaði 26 ára afmæli sínu með stæl í …
Hailey Bieber fagnaði 26 ára afmæli sínu með stæl í Japan. Samsett mynd

Fyrirsætan Hailey Bieber fagnaði nýju aldursári með sannkallaðri afmælisviku í Tókýó í Japan. Hún hefur verið dugleg að deila myndum frá vikunni á samfélagsmiðlum, en með henni fögnuðu eiginmaður hennar, Justin Bieber og vinkona hennar, Kendall Jenner. 

Fyrirsætan Hailey Bieber fagnaði nýju aldursári með sannkallaðri afmælisviku í Tókýó í Japan. Hún hefur verið dugleg að deila myndum frá vikunni á samfélagsmiðlum, en með henni fögnuðu eiginmaður hennar, Justin Bieber og vinkona hennar, Kendall Jenner. 

Hailey varð 26 ára hinn 22. nóvember síðastliðinn, en undanfarna daga hefur hún notið til hins ýtrasta í Japan með fólkinu sínu. Af myndum að dæma ferðaðist Hailey víðsvegar um Tókýó og gæddi sér á góðum mat.

Þá var blásið til afmælisveislu þar sem tískugyðjan sjálf klæddist „vintage“ pallíettu korseletti frá Dolce & Gabbana, víðum gallabuxum frá Balenciaga og ljósri kápu frá Bottega Venta. Hvítir hælar frá Balenciaga og „vintage“ Louis Vuitton taska settu svo punktinn yfir i-ið. 

Afmælisdress fyrirsætunnar er ekki ódýrt, en gallabuxurnar hennar kosta yfir þúsund Bandaríkjadali, eða um 160 þúsund krónur, á meðan kápan kosta 12.500 Bandaríkjadali, eða 1,7 milljón krónur. Þá kostuðu skórnir um 230 þúsund krónur, en samanlagt kostaði dressið því vel yfir tvær milljónir króna. 

Afmæliskoss í bambus skógi

Eiginmaður hennar, Justin, hefur einnig verið duglegur að deila myndum frá ferðalaginu. Þau hjónin byrjuðu ferðina á því að fara í bambus skóg og tóku þar sætar myndir af sér, en hann deildi fallegri færslu á afmælisdegi fyrirsætunnar. 

„Hamingjuóskir (í Japan) til uppáhalds manneskjunnar minnar. Þú fyllir lífið af töfrum,“ skrifaði hann við færsluna, en hann birti skemmtilega myndaröð af hjónunum á ferðalagi um Tókýó. 

mbl.is