Þekktri íranskri leikkonu sleppt úr haldi

Mótmæli í Íran | 28. nóvember 2022

Þekktri íranskri leikkonu sleppt úr haldi

Þekkt írönsk leikkona, Hengameh Ghaziani, hefur verið látin laus úr haldi lögreglu gegn tryggingu, samkvæmt írönskum fjölmiðlum. Hún var handtekin fyrir rúmri viku fyrir styðja opinberlega mótmælin sem geisað hafa í landinu síðustu tvo mánuði.

Þekktri íranskri leikkonu sleppt úr haldi

Mótmæli í Íran | 28. nóvember 2022

Ghaziani hefur nú verið látin laus gegn tryggingu.
Ghaziani hefur nú verið látin laus gegn tryggingu. AFP/Atta Kenare

Þekkt írönsk leikkona, Hengameh Ghaziani, hefur verið látin laus úr haldi lögreglu gegn tryggingu, samkvæmt írönskum fjölmiðlum. Hún var handtekin fyrir rúmri viku fyrir styðja opinberlega mótmælin sem geisað hafa í landinu síðustu tvo mánuði.

Þekkt írönsk leikkona, Hengameh Ghaziani, hefur verið látin laus úr haldi lögreglu gegn tryggingu, samkvæmt írönskum fjölmiðlum. Hún var handtekin fyrir rúmri viku fyrir styðja opinberlega mótmælin sem geisað hafa í landinu síðustu tvo mánuði.

Áður hafði tveimur þekktum einstaklingum, sem sýndu samstöðu, einnig verið sleppt úr haldi; fyrrverandi knattspyrnumanninum Voria Ghafouri og aðgerðasinnanum Hussein Ronaghi. Þeim var líka sleppt gegn tryggingu.

Yfirvöld í Íran greindu frá því þann 20. nóvember síðastliðinn að Ghaziani hefði verið tekin til yfirheyrslu, ásamt sjö öðrum nafntoguðum einstaklingum og stjórnmálamönnum, vegna ummæla sem fólkið hefði látið falla í tengslum við mótmælin sem hófust eftir að hin 22 ára Mahsa Amini lést í haldi í lögreglu í september. Hún hafði verið handtekin af írönsku siðgæðislögreglunni fyrir að brjóta strangar reglur um klæðaburð kvenna.

Áður en Ghaziani var handtekin hafði hún greint frá því að yfirvöld væru á eftir henni, en í kjölfarið birti hún myndband af sér á Instagram þar sem hún fjarlægði höfuðslæðu sem konum í Íran ber skylda að bera.

„Sýningunni er lokið“

Fleiri hafa gert slíkt hið sama, en nú hefur verið birt myndband á samfélagsmiðlum sem sýnir hóp íranskra leikara, bæði konur og karla, framkvæma þögul mótmæli þar sem þau taka niður höfuðslæður, til að sýna samstöðu.

Í myndbandinu sést leikkonann og leikstýran Soheila Golestani ganga svartklædd inn í mynd, snúa sér við og sýna að hún ber ekki slæðu. Níu konur til viðbótar gera slíkt hið sama og fimm karlmenn.

Golestani birti sjálf myndbandið á Instagram-síðu sinni í gær. „Sýningunni er lokið og sannleikurinn hefur verið afhjúpaður,“ skrifaði hún. „Raunverulegu hetjurnar okkar er allt óþekkta fólkið.“

Íransk­ar ör­ygg­is­sveit­ir hafa að minnsta kosti drepið 326 manns í aðgerðum sín­um gegn mót­mæl­end­um á síðustu mánuðum, samkvæmt Samtökunum Írönsk mann­rétt­indi (e. Iran Hum­an Rights (IHR)), og þúsundir hafa verið handtekin.

mbl.is