Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarið, sem og alltaf í kjaraviðræðum undanfarinna ára. Á sama tíma hefur greiðsla hins hárfagra Halldórs vakið athygli.

Lokkar Halldórs hafa ítrekað vakið athygli á samfélagsmiðlum á sama tíma og aukin harka hefur færst í kjaraviðræðurnar á síðustu vikum. Á síðustu fimm árum hefur Halldór líka leyft hárinu að vaxa og hafa náttúrulegir liðir hársins komið æ betur í ljós.
Árið er 2017 og Halldór Benjamín hafði greinilega enn tíma til þess að fara í klippingu og gela sig til fyrir myndatökur. Það átti eftir að breytast all verulega.
Halldór Benjamín var vel greiddur í pontu fyrir fjórum árum. Ekki fæst staðfest hvaða efni hann var að nota í hárið á þessum tíma en líklega eru það ekki sömu efni og í dag.
Árið sem Halldór Benjamín varð fertugur og „fabulous“ fór hann að safna hári. Sumir menn reyna að safna hári þegar kollvikin hækka en það á ekki við um hann.
Kórónuveirufaraldurinn skall á með tilheyrandi lokunum á hárgreiðslustofum. Hárspekúlantar héldu líklega að Halldór Benjamín hefði lent í því að komast ekki í sína mánaðarlegu klippingu.
Halldór Benjamín var spakur í setti Dagmála Morgunblaðsins í fyrra. Þar var að vísu búið að eiga við hárið og leit það nokkuð vel út. Þykkt og glansandi.
Það lítur einna helst út fyrir að hárið á höfði Halldórs Benjamíns sé með sjálfstæðan vilja. Blaðamaður Smartlands hafði samband við Halldór Benjamín til þess að fá hann til þess að deila hárrútínunni sinni en hann var ófáanlegur til þess og sagði þessi fleygu orð: „Ég get ekki hleypt blaðamanni inn á baðherbergi hjá mér.“