Nokkur sendiráð og ræðismannaskrifstofur Úkraínu víðs vegar um Evrópu hafa fengið augu úr dýrum send í pósti að sögn úkraínska utanríkisráðuneytisins.

Oleg Nikolenko, talsmaður ráðuneytisins, greinir frá því að „alblóðugu“ pakkarnir hafi fundist í Ungverjalandi, á Ítalíu, Hollandi, Póllandi, Króatíu og Austurríki.
BBC greinir frá því að óljóst er hver sendi pakkanna.
Nikolenko sagði að pakkarnir sex hafi verið gegndrepa af vökva sem var í einkennandi lit og hafði samsvarandi lykt.
Dmítró Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði að um „vel skipulagða herðferð hryðjuverka“ væri að ræða.
Nikolenko greindi frá nokkrum atvikum á Facebook. Meðal annars hafi skemmdarverk verið unnin á inngang að bústaði sendiherra Úkraínu í Páfagarði og þá hafi sendiráðið í Kasakstan fengið sprengjuhótun.
Hann bætti við að úkraínsk yfirvöld væru að rannsaka atvikin ásamt lögreglu í ríkjunum.