Jólalegasti veitingastaðurinn í Washington

Borgarferðir | 2. desember 2022

Margir hugsa sér til hreyfings í aðdraganda jólanna og vilja upplifa sannan jólaanda í öðrum löndum. Í Washington D.C. má finna ítalskan veitingastað sem fer algjörlega og fullkomlega yfir strikið hvað jólaskreytingar varðar. 

Filomena í Washington er troðfullur af jólaskrauti.
Filomena í Washington er troðfullur af jólaskrauti. Skjáskot/Instagram

Margir hugsa sér til hreyfings í aðdraganda jólanna og vilja upplifa sannan jólaanda í öðrum löndum. Í Washington D.C. má finna ítalskan veitingastað sem fer algjörlega og fullkomlega yfir strikið hvað jólaskreytingar varðar. 

Margir hugsa sér til hreyfings í aðdraganda jólanna og vilja upplifa sannan jólaanda í öðrum löndum. Í Washington D.C. má finna ítalskan veitingastað sem fer algjörlega og fullkomlega yfir strikið hvað jólaskreytingar varðar. 

Staðurinn heitir Filomena og er hefðbundinn ítalskur fjölskylduveitingastaður. Við inngang staðarins má sjá hvernig ferskt pasta er útbúið með hefðbundnum aðferðum. Þá eru pastaréttir áberandi á matseðlinum.

Ef maður ætti einhvern tímann að prófa þennan veitingastað þá er það fyrir jól. Sjón er sögu ríkari.

Inni á staðnum eru fjölmörg tækifæri til þess að stilla …
Inni á staðnum eru fjölmörg tækifæri til þess að stilla börnunum upp við eitthvað jólalegt og taka myndir. Það er líka um að gera að draga fram jólapeysurnar. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is