Það hefur mikið gengið á í lífi leikstjórans Oliviu Wilde undanfarið ár, en hún er um þessar mundir stödd í fríi á Havaí þar sem hún jafnar sig á erfiðum sambandsslitum. Tvær vikur eru liðnar frá því að tilkynnt var um sambandsslit hennar og tólistarmannsins Harry Styles.

Wilde og Styles voru saman í rúmlega tvö ár, en samband þeirra var litað af dramatík frá fyrsta degi. Þau kynntust við upptökur á kvikmyndinni Don't Worry Darling sem Wilde leikstýrði, en Styles fór með eitt af aðalhlutverkum kvikmyndarinnar, en deilur innan leikarahópsins voru áberandi í fjölmiðlum.
Sambandsslitin eru sögð hafa reynst Wilde erfið þar sem þau hafi komið henni virkilega á óvart. „Hún er vonsvikin. Þetta er bara erfið staða. Þrýstingurinn frá almenningi hefur reynst þeim erfiður. Þau hafa upplifað hæðir og lægðir í gegnum sambandið,“ sagði heimildarmaður People.
Nú er Wilde hins vegar stödd í fríi á Havaí með vinkonu sinni, frumkvöðlinum Babs Burchfield og deildi mynd af þeim vinkonum á ströndinni. Af myndinni að dæma var fríið akkúrat það sem Wilde þurfti á að halda, enda mikil gleði hjá vinkonunum.