Ragnar fékk sláandi póst frá leigutaka

Húsnæðismarkaðurinn | 6. desember 2022

Ragnar fékk sláandi póst frá leigutaka

„Ég fékk póst frá leigutaka hjá Ölmu leigufélagi sem er vægast sagt sláandi,“ skrifar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, á Facebook-síðu sína í kvöld.

Ragnar fékk sláandi póst frá leigutaka

Húsnæðismarkaðurinn | 6. desember 2022

Ragnari Þór blöskrar frásögn hálfsjötugrar konu og bréf til hennar …
Ragnari Þór blöskrar frásögn hálfsjötugrar konu og bréf til hennar frá leigufélaginu Ölmu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

„Ég fékk póst frá leigutaka hjá Ölmu leigufélagi sem er vægast sagt sláandi,“ skrifar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, á Facebook-síðu sína í kvöld.

„Ég fékk póst frá leigutaka hjá Ölmu leigufélagi sem er vægast sagt sláandi,“ skrifar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, á Facebook-síðu sína í kvöld.

„Hún heitir Brynja og er 65 ára. Alma býður henni nýjan 12 mánaða leigusamning sem mun taka gildi frá byrjun febrúar á næsta ári með hækkun upp á 75.247 kr. á mánuði miðað við vísitölu í nóvember, sem var 555,6 en er komin 560,9. Það þýðir að hækkunin sem henni stendur til boða verður 78.347 kr. á mánuði frá og með febrúar næstkomandi en fer að öllum líkindum hækkandi fram að þeim tíma,“ skrifar Ragnar.

Kveðst hann því næst hafa rætt við Brynju síðdegis í dag og hafi sú saga er þar kom fram verið sláandi. Ragnar fékk góðfúslegt leyfi viðmælanda síns til að birta frásögnina þar sem Brynja væri nauðbeygð til að flytja út þar sem hún gæti engan veginn staðið undir hækkuninni.

Hafragrautur meginhluta mánaðar

„Brynja er sjúklingur en hefur ával[l]t staðið í skilum við leigufélagið eins og flestir gera með því að borga leiguna fyrst og lifa á hafragraut megin hluta mánaðarins. Til að setja þetta í samhengi þyrftum við í verkalýðshreyfingunni að hækka laun um 133.000 kr. á mánuði til að hún gæti staðið undir þessum kostnaðarauka. Og þá er allt annað eftir sem hækkað hefur langt úr hófi fram,“ skrifar Ragnar.

Erindi Brynju.
Erindi Brynju. Ljósmynd/Facebook

Engum ætti að koma á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn hafi unnið hvað harðast gegn því að leigubremsu verði komið á til að sporna við gengdarlausri [sic] græðgi og því miskunnarleysi sem viðgengst á leigumarkaði.

Birtir Ragnar því næst bréf leigufélagsins til Brynju sem hún sjálf hafi kallað dapurlega jólagjöf. Hér á eftir fer það:

Sæl Brynja,

Nú líður að endurnýjun leigusamnings þíns vegna Hverfisgötu 59, íbúð 102. Núverandi leigusamningur rennur út 31.01.2023 næst komandi. Við viljum endilega heyra frá þér hvort þú hafir hug á því að endurnýja leigusamninginn þinn frá 01.02.2023.

Við getum boðið þér endurnýjun á leigusamningi með grunnleiguverð kr. 325.000.- og upphafsvísitölu 555,6. Athugaðu að upphafsvísitala samnings miðast við nóvember mánuð [sic] 2022.

Greiðsla skv. núverandi leigusamningi í nóvember er kr. 249.753,-

Við bjóðum upp á tímabundna leigusamninga til 12 mánaða eða langtímasamninga til allt að 60 mánaða. Innheimt er álag ofan á grunnleiguverð langtímasamninga sem ákvarðast af lengd samnings. Meðfylgjandi er skjal með frekari útskýringum.

Við biðjum þig að láta okkur vita sem fyrst eða í síðasta lagi 01.01.2023 hvort þú komir til með að endurnýja samninginn þinn.

Vertu endilega í sambandi við okkur ef þú hefur frekari spurningar eða ef eitthvað er óljóst.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Með kveðju,

Starfsfólk Ölmu

„Ég velti því stundum fyrir mér hvert í fjandanum við erum komin sem samfélag,“ ritar Ragnar í niðurlagi pistils síns.

mbl.is