Hálfur milljarður í viðbúnað lögreglu

Fjárlög 2023 | 15. desember 2022

Hálfur milljarður í viðbúnað lögreglu

Hálfur milljarður króna verður settur í viðbúnað lögreglu fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins sem fyrirhugaður er hér á landi í maí á næsta ári, samkvæmt nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar við fjárlög næsta árs. Um er að ræða fjórða slíka fundinn í sögu ráðsins.

Hálfur milljarður í viðbúnað lögreglu

Fjárlög 2023 | 15. desember 2022

Þórdís Kolbrún tók við formennsku af Breifne O'Reilley, fastafulltrúa Írlands …
Þórdís Kolbrún tók við formennsku af Breifne O'Reilley, fastafulltrúa Írlands í nóvember. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Hálfur milljarður króna verður settur í viðbúnað lögreglu fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins sem fyrirhugaður er hér á landi í maí á næsta ári, samkvæmt nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar við fjárlög næsta árs. Um er að ræða fjórða slíka fundinn í sögu ráðsins.

Hálfur milljarður króna verður settur í viðbúnað lögreglu fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins sem fyrirhugaður er hér á landi í maí á næsta ári, samkvæmt nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar við fjárlög næsta árs. Um er að ræða fjórða slíka fundinn í sögu ráðsins.

Leggur nefndin þetta til vegna aukinnar öryggisgæslu lögreglu og umstangs í kring um fundinn. Ísland gegnir formennsku í ráðinu.

„Gert er ráð fyrir að tugir þjóðarleiðtoga, ráðherra og embættismanna frá flestum ríkjum Evrópu muni sækja fundinn,“ segir í álitinu en um er að ræða umfangsmesta fund sinnar tegundar sem Ísland hefur haldið.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra verða gestgjafar fundarins í vor.

mbl.is