Hvernig væri að vera eins og Zendaya?

Snyrtibuddan | 20. desember 2022

Hvernig væri að vera eins og Zendaya?

Zendaya er alltaf fallega förðuð. Þú getur auðveldlega lært að farða þig á svipaðan hátt. 

Hvernig væri að vera eins og Zendaya?

Snyrtibuddan | 20. desember 2022

Zendaya er hér förðuð með vörum frá Lancôme.
Zendaya er hér förðuð með vörum frá Lancôme.

Zendaya er alltaf fallega förðuð. Þú getur auðveldlega lært að farða þig á svipaðan hátt. 

Zendaya er alltaf fallega förðuð. Þú getur auðveldlega lært að farða þig á svipaðan hátt. 

Ameríska leikkonan og söngkonan Zendaya var stórglæsileg á Emmy-verðlaunahátíðinni þar sem hún krækti í verðlaun fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni Euphora. Leikkonan er einnig andlit franska snyrtivörumerkisins Lancôme. Á hátíðinni skartaði hún einstaklega fallegri förðun þar sem lögð var áhersla á heillandi augnförðun og lýtalausa húð. Þessi förðun fór vel á rauða dreglinum en hún mun líka smellpassa á andlit íslenskra kvenna yfir jólahátíðina.

Lancôme Teint Idole Ultra Wear Care & Glow farðinn gefur …
Lancôme Teint Idole Ultra Wear Care & Glow farðinn gefur fallega áferð.

Fyrir jafna, ljómandi og náttúrulega áferð notaði förðunarfræðingur Lancôme Teint Idole Ultra Wear Care & Glow. Farðinn er náttúrulegur og gefur heilbrigðan ljóma, hann þekur vel, jafnar áferð og endist í allt að 24 klukkutíma. Þessi farði hentar því vel fyrir jólaþyrsta einstaklinga sem vilja alls ekki fara heim úr jólaboðinu og vilja spila fram á nótt. Til að draga úr litabreytingum á augnsvæði og þrota er Zendaya með Teint Idole Ultra Wear All Over-hyljarann en bæði hann og farðinn innihalda einstaka eiginleika. Þegar þetta tvennt er notað saman fær húðin mýkt, raka og næringu.

Hyljarinn Teint Idole Ultra Wear hefur slegið í gegn á …
Hyljarinn Teint Idole Ultra Wear hefur slegið í gegn á árinu.

Augnförðunin er mild og heillandi með skörpum eyeliner sem fer einstaklega vel með dökkum vörum sem oft einkenna hátíðirnar. Zendaya er hérna með Hypnôse-augnskuggapallettu í lit nr. 04, Taupe Craze, Idôle-eyeliner sem er vatnsheldur og einstaklega nákvæmur eyeliner-penni og Lash Idôle-maskarann sem er söluhæsti maskarinn frá Lancôme hér á landi. Á vörunum er Zendaya svo með L‘Absolu Rouge Cream-varalit í lit nr. 274, French-Tea, en varalitirnir gefa mikla næringu og mýkt, renna ekki til og gefa þægindi allan daginn.

L‘Absolu Rouge Cream-varalitur í lit nr. 274.
L‘Absolu Rouge Cream-varalitur í lit nr. 274.
Lash Idole maskarinn.
Lash Idole maskarinn.
Hypnôse-augnskuggapallettan í lit nr. 04.
Hypnôse-augnskuggapallettan í lit nr. 04.
Idôle-eyeliner er auðveldur í notkun.
Idôle-eyeliner er auðveldur í notkun.
mbl.is