Vilja að Kína upplýsi um stöðu faraldursins

Kórónuveiran Covid-19 | 31. desember 2022

Vilja að Kína upplýsi um stöðu faraldursins

Fulltrúar kínveskra stjórnvalda mættu á fund Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í dag til þess að ræða bylgju kórónuveirusmita þar í landi.

Vilja að Kína upplýsi um stöðu faraldursins

Kórónuveiran Covid-19 | 31. desember 2022

Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Ræddi stofnunin við fulltrúa kínverskra …
Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Ræddi stofnunin við fulltrúa kínverskra stjórnvalda í dag. AFP

Fulltrúar kínveskra stjórnvalda mættu á fund Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í dag til þess að ræða bylgju kórónuveirusmita þar í landi.

Fulltrúar kínveskra stjórnvalda mættu á fund Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í dag til þess að ræða bylgju kórónuveirusmita þar í landi.

Ítrekaði WHO beiðni sína um nákvæm gögn um stöðu faraldursins í Kína, sem séu reglulega uppfærð. Þá var einnig beðið um gögn sem sýndu bólusetningarhlutfall Kínverja, sérstaklega hjá viðkvæmum hópum og fólki yfir sextugu.

Lögðu áherslu á mikilvægi þess að skila gögnum

Brýndi WHO fyrir kínverskum stjórnvöldum mikilvægi þess að deila faraldsfræðilegum gögnum með umheiminum.

Bandarísk stjórnvöld hafa kvartað yfir upplýsingaóreiðu Kínverja, sem afléttu um þriggja ára samkomutakmörkunum í desember. Bandaríkin, Bretland, Frakkland og fleiri ríki krefjast þess að Kínverjar sem ferðast þangað skili inn neikvæðu kórónuveiruprófi.

mbl.is