Jón Jónsson nýtur lífsins á Balí

Frægir ferðast | 6. janúar 2023

Jón Jónsson nýtur lífsins á Balí

Tón­list­armaður­inn Jón Jóns­son og Haf­dís Björk Jóns­dótt­ir tann­lækn­ir fóru til Balí á dögunum með góðu fólki. Fjölskyldan fagnaði jólunum á Íslandi en þau voru hinu megin á hnettinum þegar árið 2023 gekk í garð. 

Jón Jónsson nýtur lífsins á Balí

Frægir ferðast | 6. janúar 2023

Jón Jónsson birti þessa skemmtilegu með mynd af fjölskyldu sinni …
Jón Jónsson birti þessa skemmtilegu með mynd af fjölskyldu sinni og apa frá Balí. Skjáskot/Instagram

Tón­list­armaður­inn Jón Jóns­son og Haf­dís Björk Jóns­dótt­ir tann­lækn­ir fóru til Balí á dögunum með góðu fólki. Fjölskyldan fagnaði jólunum á Íslandi en þau voru hinu megin á hnettinum þegar árið 2023 gekk í garð. 

Tón­list­armaður­inn Jón Jóns­son og Haf­dís Björk Jóns­dótt­ir tann­lækn­ir fóru til Balí á dögunum með góðu fólki. Fjölskyldan fagnaði jólunum á Íslandi en þau voru hinu megin á hnettinum þegar árið 2023 gekk í garð. 

Með í ævintýraferðinni eru að sjálfsögðu börn þeirra hjóna en Jón og Hafdís sem hafa verið saman í 20 ár eignuðust sitt fjóra barn í vor. Litli drengurinn er orðinn mikill heimsborgari strax á fyrsta ári. Jón er duglegur að sýna frá tíðum ferðalögum þeirra á Instagram. 

Ferðamenn eru byrjaðir að streyma til Balí eftir heimsfaraldurinn. Tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson var á Balí yfir hátíðirnar og ferðaljósmyndarinn Ása Steinars var þar ásamt fjölskyldu sinni í töluverðan tíma nýlega og kom heim rétt eftir jól. Hitastigið er auðvitað ansi notalegt en meðalhiti í janúar er 26 stig. 

mbl.is