Nýjar gervihnattamyndir sýna rústirnar

Úkraína | 13. janúar 2023

Nýjar gervihnattamyndir sýna rústirnar

Nýjar gervihnattamyndir sýna hvernig hörð barátta um yfirráð bæjarins Soledar í austurhluta Úkraínu hefur leitt til gjöreyðileggingar bygginga og innviða í bænum.

Nýjar gervihnattamyndir sýna rústirnar

Úkraína | 13. janúar 2023

Gervihnattamyndir frá tæknifyrirtækinu Maxar sýna hvernig byggingar og vegir borgarinnar …
Gervihnattamyndir frá tæknifyrirtækinu Maxar sýna hvernig byggingar og vegir borgarinnar hafa gjöreyðilagst síðustu mánuði. AFP

Nýjar gervihnattamyndir sýna hvernig hörð barátta um yfirráð bæjarins Soledar í austurhluta Úkraínu hefur leitt til gjöreyðileggingar bygginga og innviða í bænum.

Nýjar gervihnattamyndir sýna hvernig hörð barátta um yfirráð bæjarins Soledar í austurhluta Úkraínu hefur leitt til gjöreyðileggingar bygginga og innviða í bænum.

Um er að ræða myndir sem Maxar, tæknifyrirtæki frá Bandaríkjunum, tók í vikunni og hefur nú birt. Breska ríkisútvarpið greinir frá.

Myndin sýnir byggingar og skóla í suðurhluta bæjarins síðasta sumar.
Myndin sýnir byggingar og skóla í suðurhluta bæjarins síðasta sumar. AFP
Mynd af sama svæði frá því í gær, miðvikudag. Byggingar …
Mynd af sama svæði frá því í gær, miðvikudag. Byggingar og skólar sem hafa gjöreyðilagst. AFP

Leiðtogi Wagner-málaliðahópsins, Jevgení Prígosjín, tilkynnti í gærmorgun að menn hans hefðu náð yfirráðum í bænum, þrátt fyrir að barist væri víða í útjöðrum hans.

Efri myndin er tekin þann 1. ágúst 2022. Sú neðri …
Efri myndin er tekin þann 1. ágúst 2022. Sú neðri er tekin á þriðjudag, 10. janúar 2023. AFP

Reynt í ofvæni síðustu vikur

Baráttan fyrir Soledar er talin sérstaklega blóðug, en Wagner-hópurinn er þekktur fyrir hin ýmsu ódæðisverk víða um heim.

Hafa Rússar síðustu vikur reynt í ofvæni að ná borginni á vald sitt eftir að hafa ekki tekist að ná yfirráðum á úkraínskri borg eða bæ svo mánuðum skiptir.

Helstu sérfræðingar hafa ekki komið sér saman um hernaðarlegt mikilvægi borgarinnar Soledar. Víst er þó að nái Rússar fullu yfirráði yfir borginni mun sá sigur verða táknrænn. 

mbl.is