„Með öllu óviðunandi og grafalvarlegt“

Suðurnesjalína 2 | 17. janúar 2023

„Með öllu óviðunandi og grafalvarlegt“

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar telur að „alvarlega ástandið“ sem myndaðist á öllum Suðurnesjum í kjölfar þess að Suðurnesjalína sló út í gær, með öllu óviðunandi og grafalvarlegt.

„Með öllu óviðunandi og grafalvarlegt“

Suðurnesjalína 2 | 17. janúar 2023

Rafmagnslaust var á öllum Suðurnesjum í tvær klukkustundir í gær.
Rafmagnslaust var á öllum Suðurnesjum í tvær klukkustundir í gær. mbl.is/​Hari

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar telur að „alvarlega ástandið“ sem myndaðist á öllum Suðurnesjum í kjölfar þess að Suðurnesjalína sló út í gær, með öllu óviðunandi og grafalvarlegt.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar telur að „alvarlega ástandið“ sem myndaðist á öllum Suðurnesjum í kjölfar þess að Suðurnesjalína sló út í gær, með öllu óviðunandi og grafalvarlegt.

Þetta kom fram í ályktun frá bæjarstjórninni sem var samþykkt samhljóða á fundi fyrr í dag.

Rúmlega 30 þúsund manns búa á Suðurnesjunum en í gær fór rafmagnið af í rúmar tvær klukkustundir eftir að línan sló út. Í kjölfarið fór heitt vatn, bæði neysluvatn og hitaveita af, og stuttu síðar fór einnig síma- og netsamband af öllu svæðinu.

„Það er með öllu óviðunandi og grafalvarlegt að slíkt skuli geta gerst árið 2023,“ segir í ályktuninni.

Skora á Voga og Landsnet að leysa úr ágreiningi

Bæjarstjórnin skorar á Sveitarfélagið Voga og Landsnet að leysa strax úr ágreiningi um lagnaleiðir Suðurnesjalínu 2 og leiða það mál til lykta sem allra fyrst til að tryggja raforkuöryggi á svæðinu.

Þá skorar bæjarstjórnin einnig á fyrirtæki sem veita síma- og netþjónustu að tryggja lengri uppitíma á varaafli en raunin var í gær.

mbl.is