Hyggst leyfa heimabruggun á áfengi til einkaneyslu

Alþingi | 19. janúar 2023

Hyggst leyfa heimabruggun á áfengi til einkaneyslu

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur sett áform um breytingar á áfengislögum í samráðsgátt stjórnvalda þess efnis að heimila heimabruggun áfengis til einkaneyslu. 

Hyggst leyfa heimabruggun á áfengi til einkaneyslu

Alþingi | 19. janúar 2023

Jón Gunnarsson hyggst gera heimabruggun bjórs leyfilegan á Íslandi.
Jón Gunnarsson hyggst gera heimabruggun bjórs leyfilegan á Íslandi. mbl.is/​Hari

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur sett áform um breytingar á áfengislögum í samráðsgátt stjórnvalda þess efnis að heimila heimabruggun áfengis til einkaneyslu. 

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur sett áform um breytingar á áfengislögum í samráðsgátt stjórnvalda þess efnis að heimila heimabruggun áfengis til einkaneyslu. 

Með frumvarpinu, sem áformin eru um, er ráðgert að afnema bann við heimabruggun en þó er áfram gert ráð fyrir því að óheimilt verði að framleiða áfengi til einkaneyslu með eimingu. 

Þá verður einnig áfram óheimilt að stunda heimabruggun í því skyni að selja afurðina, enda er þá um atvinnustarfsemi að ræða sem er leyfisskyld samkvæmt lögum og reglum þar að lútandi.

Hægt er að senda inn athugasemdir við áformin til 2. febrúar. 

Fáir upplýstir um refsiverðan verknað

Í greinagerð með áformunum segir að rík menning hafi orðið til á undanförnum árum fyrir heimabruggun, þá sérstaklega bjórs. 

„Félög hafa verið stofnuð utan um heimabruggun áfengis til einkaneyslu, námskeið um slíka bruggun verið auglýst opinberlega og almenn umræða átt sér stað fyrir opnum tjöldum um athæfið. Almenningur virðist lítt upplýstur um að heimabruggun áfengis til einkaneyslu feli í sér refsiverðan verknað, sem bendir til þess að réttarvitund almennings kunni að vera á skjön við hið lögfesta og fortakslausa bann í 4. gr. áfengislaga. Því er talið tímabært að taka til skoðunar hvort enn séu rök fyrir því að skilgreina heimabruggun sem refsiverða háttsemi samkvæmt lögum.“

mbl.is