Verða að útvega Úkraínu öflugri vopn

Úkraína | 24. janúar 2023

Verða að útvega Úkraínu öflugri vopn

Vesturlönd verða að útvega Úkraínumönnum öflugri vopn til að berjast gegn innrás Rússa í landið vegna þess að rússnesk stjórnvöld sýna engin merki þess að þau muni breyta aðferðafræði sinni.

Þetta sagði Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, í morgun.

„Við sjáum ekkert sem bendir til þess að Pútín forseti [Rússlands] hafi breytt markmiðum sínum....Eina leiðin fyrir varanlegan frið er að gera Pútín það ljóst að við hann mun ekki bera sigur úr býtum á vígvellinum. Þess vegna verðum við að útvega þyngri og háþróaðri vopn,“ sagði Stoltenberg er hann heimsótti Berlín, höfuðborg Þýskalands.

Jens Stoltenberg í Berlín í morgun.
Jens Stoltenberg í Berlín í morgun. AFP/Tobias Schwarz

Leyfi liggur ekki fyrir

Hann kvaðst jafnframt búast fljótlega við ákvörðun um hvort sendir verði Leopard-skriðdrekar, sem eru smíðaðir í Þýskalandi, til Úkraínu. Varnarmálaráðuneyti Þýskalands segir að Vesturlönd geti byrjað að þjálfa úkraínskar hersveitir í notkun skriðdrekanna þrátt fyrir að ekki liggi fyrir ákvörðun þýskra stjórnvalda um leyfi til að senda þá til Úkraínu.

Pólverjar báðu Þjóðverja í morgun formlega um leyfi til þess að senda skriðdrekana til Úkraínu.

Þýskir Leopard 2 A7-skriðdrekar.
Þýskir Leopard 2 A7-skriðdrekar. AFP/Patrik Stollarz
mbl.is