Kolbrún Bergþórsdóttir komin aftur heim

Framakonur | 26. janúar 2023

Kolbrún Bergþórsdóttir komin aftur heim

Kolbrún Bergþórsdóttir rithöfundur, blaðamaður og bókagagnrýnandi mun hefja störf á Morgunblaðinu 1. febrúar.

Kolbrún Bergþórsdóttir komin aftur heim

Framakonur | 26. janúar 2023

Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður og bókmenntagagnrýnandi.
Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður og bókmenntagagnrýnandi. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Kolbrún Bergþórsdóttir rithöfundur, blaðamaður og bókagagnrýnandi mun hefja störf á Morgunblaðinu 1. febrúar.

Kolbrún Bergþórsdóttir rithöfundur, blaðamaður og bókagagnrýnandi mun hefja störf á Morgunblaðinu 1. febrúar.

Hún er landsþekktur blaðamaður og gagnrýnandi en hún starfaði á Morgunblaðinu á árunum 2008-2014. Það er því óhætt að segja að hún sé komin aftur heim.

Kolbrún hefur starfað í blaðamennsku í 25 ár en hún var síðast menningarritstjóri Fréttablaðsins. Henni var sagt upp störfum á Fréttablaðinu síðasta sumar og var ástæðan fyrir uppsögninni hagræðing. Um áramótin var útburði á Fréttablaðinu hætt. 

Kolbrún hefur gefið út bækur og verið bókagagnrýnandi í Kiljunni hjá Agli Helgasyni. Það urðu fagnaðarfundir þegar hún mætti í Hádegismóa í dag til þess að ganga frá ráðningu á Sunnudagsblað Morgunblaðsins. 

mbl.is