Metfjöldi eldflauga á hersýningu

Norður-Kórea | 9. febrúar 2023

Metfjöldi eldflauga á hersýningu

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hafði yfirumsjón með mikilli hersýningu þar sem metfjöldi kjarnorku- og langdrægra eldflauga var til sýnis, að sögn ríkisfjölmiðla í landinu.

Metfjöldi eldflauga á hersýningu

Norður-Kórea | 9. febrúar 2023

Kim Jong-un ásamt dóttur sinni og eiginkonu.
Kim Jong-un ásamt dóttur sinni og eiginkonu. AFP

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hafði yfirumsjón með mikilli hersýningu þar sem metfjöldi kjarnorku- og langdrægra eldflauga var til sýnis, að sögn ríkisfjölmiðla í landinu.

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hafði yfirumsjón með mikilli hersýningu þar sem metfjöldi kjarnorku- og langdrægra eldflauga var til sýnis, að sögn ríkisfjölmiðla í landinu.

Sýningin var haldin í tilefni þess að 75 áru eru liðin frá stofnun norðurkóreska hersins.

Þessi ljósmynd sem var tekin af sjónvarpsskjá sýnir langdræga eldflaug …
Þessi ljósmynd sem var tekin af sjónvarpsskjá sýnir langdræga eldflaug á hersýningunni. AFP/Jung Yeon-je

Efnt var til flugeldasýningar, auk þess sem lúðrasveit spilaði og hermenn gengu saman í takt. Kim var viðstaddur ásamt eiginkonu sinni Ri Sol Ju og dótturinni Ju Ae. Talið er að Kim og Ri eigi þrjú börn saman. 

Leiðtoginn heilsar almenningi á hersýningunni.
Leiðtoginn heilsar almenningi á hersýningunni. AFP

Á meðal vopnanna sem sáust voru að minnsta kosti 10 af stærstu eldflaugum þjóðarinnar af tegundinni Hwasong-17. Einnig voru þar farartæki sem eiga að flytja slíkar eldflaugar.


mbl.is