Steldu stílnum af Ástráði Haraldssyni

Fatastíllinn | 16. febrúar 2023

Steldu stílnum af Ástráði Haraldssyni

Ástráður Haraldsson bretti upp ermar í byrjun vikunnar þegar hann tók við keflinu af Aðalsteini Leifssyni ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.

Steldu stílnum af Ástráði Haraldssyni

Fatastíllinn | 16. febrúar 2023

Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, …
Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, er með skýra tískusýn. Samsett mynd

Ástráður Haraldsson bretti upp ermar í byrjun vikunnar þegar hann tók við keflinu af Aðalsteini Leifssyni ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.

Ástráður Haraldsson bretti upp ermar í byrjun vikunnar þegar hann tók við keflinu af Aðalsteini Leifssyni ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.

Ástráður er ekki bara reyndur í að sjá lausnir í hinum flóknustu deilum heldur er hann líka með skýra tískusýn.

Strax í gær vakti klæðnaður Ástráðs í Karphúsinu athygli en þá klæddist hann jakkafatabuxum með víðu sniði. Við buxurnar var hann í dökkri skyrtu sem er hneppt upp í háls og í peysuvesti yfir.

Í dag býður Ástráður upp á græn flauelsjakkaföt og ljósbláa skyrtu. Til að setja punktinn yfir i-ið gengur hann um gólf í Karphúsinu í ljósbrúnum mokkasínum.

Grænu flauelsbuxurnar fást hjá Kormáki og Skyldi og peysuvestið sömuleiðis.
Grænu flauelsbuxurnar fást hjá Kormáki og Skyldi og peysuvestið sömuleiðis. Ljósmynd/Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar

Eins og klipptur út úr mynd

Ástráður er oftar en ekki eins og klipptur út úr ljósmynd sem tekin er á enskum herragarði, og fötin ekki ósvipuð þeim sem fást í Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar þótt álitsgjafar Smartlands leiði að því líkur að Ástráður bæti eitthvað í fataskápinn þegar hann er á ferðalögum í útlöndum, þótt ekki hafi það fengist staðfest. 

Ástráður er í grænum flauelsbuxum og jakka í stíl. Kórónar …
Ástráður er í grænum flauelsbuxum og jakka í stíl. Kórónar hann fötin með ljósbrúnum mokkasínum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flauelsjakkar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin misseri.

Þannig mátti varla viðburður fara fram í höfuðborginni án þess að minnsta kosti fimm karlmenn skelltu sér í flauelsjakka eins og Smartland fjallaði um á síðasta ári.

mbl.is