Þessi störf verða undanþegin verkbanni SA

Kjaraviðræður | 23. febrúar 2023

Þessi störf verða undanþegin verkbanni SA

Öll störf sem tengjast heilbrigðis- og öldrunarþjónustu, opinberri sem og einkarekinni, njóta undanþágu frá verkbanni SA.

Þessi störf verða undanþegin verkbanni SA

Kjaraviðræður | 23. febrúar 2023

Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri.
Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Öll störf sem tengjast heilbrigðis- og öldrunarþjónustu, opinberri sem og einkarekinni, njóta undanþágu frá verkbanni SA.

Öll störf sem tengjast heilbrigðis- og öldrunarþjónustu, opinberri sem og einkarekinni, njóta undanþágu frá verkbanni SA.

Hennar njóta sömuleiðis öll störf sem tengjast annarri grunnþjónustu á borð við lögreglu, slökkvilið, sjúkraflutninga, björgunarsveitir, almannavarnir og menntastofnanir.

Frá þessu greina samtökin í tilkynningu, vegna þess verkbanns sem þau hafa samþykkt að leggja á félagsmenn Eflingar.

Tekið er fram að undanþágurnar séu veittar án sérstakra umsókna frá hlutaðeigandi aðilum.

Undanþágunefnd hefur einnig ákveðið að umsóknir aðila sem Efling - stéttarfélag hefur þegar veitt, verði samþykktar af hálfu undanþágunefndar SA.

mbl.is