Hildur í einstakri dragt á meðal stórstjarna

Fatastíllinn | 24. febrúar 2023

Hildur í einstakri dragt á meðal stórstjarna

Tónskáldið Hildur Guðnadóttir var glæsileg í brúnni dragt þegar kvikmyndin Tár var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín á fimmtudaginn. Hildur er höfundur tónlistarinnar í Tár sem skartar stórstjörnum í aðalhlutverkum. 

Hildur í einstakri dragt á meðal stórstjarna

Fatastíllinn | 24. febrúar 2023

Hildur var flott í brúnni dragt.
Hildur var flott í brúnni dragt. Samsett mynd

Tónskáldið Hildur Guðnadóttir var glæsileg í brúnni dragt þegar kvikmyndin Tár var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín á fimmtudaginn. Hildur er höfundur tónlistarinnar í Tár sem skartar stórstjörnum í aðalhlutverkum. 

Tónskáldið Hildur Guðnadóttir var glæsileg í brúnni dragt þegar kvikmyndin Tár var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín á fimmtudaginn. Hildur er höfundur tónlistarinnar í Tár sem skartar stórstjörnum í aðalhlutverkum. 

Hildur klæddist fallegri dragt í hippalegum brúnum lit á frumsýningunni. Punktinn yfir i-ið settu skemmtilegar hvítar tölur á jakkanum. Hvítu smáatriðin gerðu dragtina öðruvísi og að einhverju aðeins extra. 

Hér má sjá Hildi Guðnadóttur fyrir miðju ásamt öðrum aðstandendum …
Hér má sjá Hildi Guðnadóttur fyrir miðju ásamt öðrum aðstandendum myndarinnar. AFP

Blanchett í gömlu pilsi

Óskarsverðlaunaleikkonan Cate Blanchett skellti sér einnig til Berlínar en hún fer með hlutverk tónlistarstjórans Lydiu Tár í myndinni. Blanchett sem er öllu vön af rauða dreglinum mætti í marglituðu tjullpilsi frá Givenchy en hún klæddist því einnig á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2018. Blanchett hefur verið dugleg að endurnýta flíkurnar sínar. Hún klæddist til að mynda gömlum óskarskjól á BAFTA-verðlaunahátíðina um síðustu helgi. 

Pils Cate Blanchett fór ekki framhjá neinum.
Pils Cate Blanchett fór ekki framhjá neinum. AFP
Cate Blanchett var í rúllukraga en bakið var bert.
Cate Blanchett var í rúllukraga en bakið var bert. AFP
Bandaríski leikstjórinn Todd Field, ástralska leikkonan Cate Blanchett, sellóleikarinn Sophie …
Bandaríski leikstjórinn Todd Field, ástralska leikkonan Cate Blanchett, sellóleikarinn Sophie Kauer og þýska leikkonan Nina Hoss á rauða dreglinum fyrir frumsýningu Tár í Berlín. AFP
mbl.is