Greiðsla til Blush reyndist eiga eðlilega skýringu

Kórónuveiran Covid-19 | 1. mars 2023

Greiðsla upp á 117.228 krónur, sem Vinnumálastofnun greiddi til BSH15 ehf., rekstrarfélags kynlífstækjaverslunarinnar Blushhefur vakið athygli eftir að um hana var fjallað í hlaðvarpinu Pyngjunni.

Greiðsla stofnunarinnar til Blush hefur vakið athygli.

Greiðslan er sýnileg á vef opinna reikninga ríkisins og var gefin út í október 2021. 

Töluvert af fyrirspurnum

Greiðslan þarf þó ekki að valda áframhaldandi titringi. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir í samtali við mbl.is að einföld útskýring sé fyrir reikningnum.

Þetta var greiðsla fyrir starfsmann í sóttkví,” segir Unnur og bætir við að styrkir til fyrirtækja vegna sóttkvíar starfsmanna hafi einfaldlega verið greiddir í gegnum þennan reikning.

Hún kveðst hafa fengið töluvert af fyrirspurnum um reikninginn. Ekkert sé þó óeðlilegt við greiðsluna enda sé Blush eitt margra fyrirtækja sem fengu styrk vegna starfsmanns í sóttkví eða einangrun, þegar faraldurinn herjaði sem verst.

mbl.is