Dagmál í 2 ár: Hvað drakkstu eiginlega mikið vín?

Dagmál | 7. mars 2023

Dagmál í 2 ár: Hvað drakkstu eiginlega mikið vín?

„Ég vissi að það væru ekki margir að fylgjast með þessu heima á Íslandi og ákvað þess vegna bara að grínast aðeins,“ sagði Snorri Einarsson, fremsti skíðagöngumaður þjóðarinnar, í Dagmálum í mars árið 2021.

Snorri var skráður til leiks í fyrsta heimsbikarmót vetrarins sem fram fór í Ruka í Finnlandi í nóvember árið 2020 en greindist óvænt með kórónuveiruna stuttu eftir komuna til landsins.

Þá fór af stað sprenghlægileg atburðarás sem endaði með því að Snorri fékk að keppa eftir að mótshaldarar höfðu skikkað hann í einangrun með þjálfara sínum í nokkra daga.

„Ég sagði við fjölmiðlakonu að við hefðum bara verið smitaðir af kórónuveirunni og hefðum þess vegna gert lítið annað en að drekka vín, en það var sagt í algjöru gríni,“ sagði Snorri.

„Ég hélt að hún myndi fatta grínið en ég sá það strax í augunum á henni að henni fannst þetta hrikalega krassandi,“ sagði Snorri en hann náði á dögunum bestum árangri Íslendings frá upphafi þegar hann hafnaði í 15. sæti í 50 kílómetra skíðagöngu á HM í Planica í Slóveníu.

Viðtalið við Snorra í heild sinni má nálgast með því að smella hér.

mbl.is