Grímunotkun valkvæð á Landspítala

Kórónuveiran Covid-19 | 10. mars 2023

Grímunotkun valkvæð á Landspítala

Grímunotkun á Landspítala er valkvæð frá og með deginum í dag. Þetta á við um alla, þ.e. sjúklinga, starfsmenn, nemendur, heimsóknargesti og aðra sem eiga erindi á Landspítala.

Grímunotkun valkvæð á Landspítala

Kórónuveiran Covid-19 | 10. mars 2023

Starfsmenn Landspítalans þegar kórónuveiran var hvað skæðust hér á landi.
Starfsmenn Landspítalans þegar kórónuveiran var hvað skæðust hér á landi. Landspítalinn/Þorkell Þorkelsson

Grímunotkun á Landspítala er valkvæð frá og með deginum í dag. Þetta á við um alla, þ.e. sjúklinga, starfsmenn, nemendur, heimsóknargesti og aðra sem eiga erindi á Landspítala.

Grímunotkun á Landspítala er valkvæð frá og með deginum í dag. Þetta á við um alla, þ.e. sjúklinga, starfsmenn, nemendur, heimsóknargesti og aðra sem eiga erindi á Landspítala.

„Ávallt þarf að hafa í huga að ef heimsóknargestur hefur einkenni öndunarfærasýkingar þá ætti hann að fresta heimsókn en nota grímu ef það er ekki hægt,“ segir í tilkynningu frá farsóttanefnd Landspítala.

Nefndin mælir með því að grímur séu áfram notaðar á bráðamóttökum þar sem þrengsli eru og ekki hægt að gæta að sóttvörnum. Einnig að grímur séu notaðar ef starfsmaður er með öndunarfæraeinkenni og ef sjúklingur fær einkenni sem þarfnast greiningar.

„Vert er að hafa í huga á næstu vikum að enn greinast ýmsar veirur sem valda öndunarfærasýkingum og fer kúrfan fremur hægt niður. Starfsfólk er því beðið um að vera vakandi fyrir einkennum hjá sjúklingum og sjálfu sér og grípa til viðeigandi ráðstafana vakni grunur um sýkingu,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is