Laufey nýr mannauðsstjóri Icewear

Framakonur | 10. mars 2023

Laufey nýr mannauðsstjóri Icewear

Laufey Guðmundsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Icewear. Laufey er með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræðum frá Háskóla Íslands, diplóma í ferðamálafræðum frá Hólum, meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og viðurkenndur sérfræðingur í fræðslustjórnun frá Akademias.

Laufey nýr mannauðsstjóri Icewear

Framakonur | 10. mars 2023

Laufey Guðmundsdóttir.
Laufey Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Hulda Margrét

Laufey Guðmundsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Icewear. Laufey er með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræðum frá Háskóla Íslands, diplóma í ferðamálafræðum frá Hólum, meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og viðurkenndur sérfræðingur í fræðslustjórnun frá Akademias.

Laufey Guðmundsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Icewear. Laufey er með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræðum frá Háskóla Íslands, diplóma í ferðamálafræðum frá Hólum, meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og viðurkenndur sérfræðingur í fræðslustjórnun frá Akademias.

„Við fögnum því að fá svo reynslumikinn mannauðsstjóra sem Laufey sannarlega er til þessa að leiða starfið einmitt núna þegar fyrirtækið hefur gengið í gegnum svo öran vöxt sem raun ber vitni. Mannauðurinn er grunnstoð í hverju fyrirtæki og því mikilvægt að hún sé styrk. Icewear leggur áherslu á að stuðla að jákvæðu umhverfi og virkri þátttöku hvers og eins með það markmið að auka ánægju og skilvirkni heildarinnar. Laufey hefur lagt upp með menntastefnu og námskeiðahald fyrir starfsfólk og stuðlar um leið að sífelldri þróun á gildum og stefnum félagsins í mannauðsmálum og sjálfbærni,“ segir Aðalsteinn I. Pálsson forstjóri Icewear.

Icewear hefur lengi verið leiðandi í sölu á útivistarfatnaði til erlendra ferðamanna en er í dag einnig eitt stærsta vörumerkið í útivistarfatnaði á íslenskum markaði. Starfsfólk telur í dag um 260 manns en verslanir Icewear eru 22 talsins og staðsettar hringinn í kringum landið, í Reykjavík, Akureyri, Vestmanneyjum, Vík í Mýrdal, Þingvöllum og við Goðafoss ásamt heildsölu og vefverslun.

„Það hefur verið skemmtileg og áhugaverð reynsla að hefja störf hjá Icewear. Fyrst sem verslunarstjóri og síðar mannauðsstjóri. Verkefnin eru fjölmörg hjá ört stækkandi fyrirtæki og ljóst að við okkur blasa margar áskoranir. Við erum sérlega rík af mannauði, valinn maður í hverju rúmi sem á stóran þátt í velgengni Icewear og þeirri vegferð sem Icewear er á, bæði á innlendum og erlendum mörkuðum. Ástríða fyrir starfinu og einstakri vöru er drifkraftur Icewear. Því mun ég gera mitt besta að hlúa að þessum krafti, hlúa að fólkinu með hvatningu og gleði að leiðarljósi. Það er gaman í okkar herbúðum,“ segir Laufey

mbl.is