Fjármálaskilyrði heimila fara versnandi

Vextir á Íslandi | 15. mars 2023

Fjármálaskilyrði heimila fara versnandi

Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að hækka gildi sveiflujöfnunarauka úr 2% í 2,5% af innlendum áhættugrunni. Í yfirlýsingu frá nefndinni segir að bankarnir séu vel í stakk búnir til að mæta aukinni eiginfjárkröfu og viðhalda á sama tíma framboði lánsfjár. 

Fjármálaskilyrði heimila fara versnandi

Vextir á Íslandi | 15. mars 2023

Fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja fara versnandi vegna mikillar verðbólgu og …
Fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja fara versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. mbl.is/Sigurður Bogi

Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að hækka gildi sveiflujöfnunarauka úr 2% í 2,5% af innlendum áhættugrunni. Í yfirlýsingu frá nefndinni segir að bankarnir séu vel í stakk búnir til að mæta aukinni eiginfjárkröfu og viðhalda á sama tíma framboði lánsfjár. 

Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að hækka gildi sveiflujöfnunarauka úr 2% í 2,5% af innlendum áhættugrunni. Í yfirlýsingu frá nefndinni segir að bankarnir séu vel í stakk búnir til að mæta aukinni eiginfjárkröfu og viðhalda á sama tíma framboði lánsfjár. 

Sveiflujöfnunaraukinn er mikilvægur þáttur í viðnámsþoli bankakerfisins. Hækkunin nú er til þess fallin að auka enn frekar á viðnámsþrótt fjármálafyrirtækja í ljósi þeirrar áhættu sem byggst hefur upp og gæti raungerst á næstu misserum. Ákvörðun nefndarinnar tekur gildi að 12 mánuðum liðnum,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá kemur jafnfram fram að nefndin muni áfram beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Fjármálaskilyrði fara versnandi

Fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja fara versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. Útlit er fyrir að verðbólga verði þrálát og að greiðslubyrði lána þyngist. 

Fjármálakerfið hér á landi stendur þó traustum fótum og hefur rekstur krefilega mikilvægra banka gengið vel. Er eiginfjár- og lausafjárstaða þeirra sterk. Vandinn sem steðjar að fjármálafyrirtækjum á alþjóðlegum mörkuðum er áminning um nauðsyn þess að innlánsstofnanir búi yfir nægjanlegum styrk til að geta sinnt hlutverki sínu, að því er fram kemur í yfirlýsingunni.

Dregið úr áhættusömum lánveitingum

Framboð á íbúðamarkaði hefur aukist og sölutími lengst. Þá er fasteignaverð farið að lækka þó það sé enn hátt á nær alla mælikvarða. Hlutfall fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu af byggingakostnaði er til að mynda með hæsta móti, að því er fram kemur í yfirlýsingunni.

Lánþegaskilyrðin hafa dregið markvert úr áhættusömum lánveitingum. Einnig eru lánveitendur vel í stakk búnir til að draga úr greiðslubyrði með breyttu lánsformi. Fjármálastöðugleikanefnd áréttar mikilvægi þess að lánveitendur á íbúðalánamarkaði vinni með lántakendum, nú sem áður, til að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika eins og kostur er.

 

mbl.is