„Bætir við að ég sé viðurstyggð“

Alþingi | 17. mars 2023

„Bætir við að ég sé viðurstyggð“

Ásmund­ur Friðriks­son­, þing­maður Sjálf­stæðis­flokks­ins, þvertekur fyrir að hann hafi ásakað Helgu Völu Helga­dótt­ur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar, að það væri ekkert að marka hana þar sem hún hefði grætt svo mikið á flóttafólki. 

„Bætir við að ég sé viðurstyggð“

Alþingi | 17. mars 2023

Ásmundur telur talsmáta Helgu Völu í þinginu vera fyrir neðan …
Ásmundur telur talsmáta Helgu Völu í þinginu vera fyrir neðan allar hellur. Samsett mynd

Ásmund­ur Friðriks­son­, þing­maður Sjálf­stæðis­flokks­ins, þvertekur fyrir að hann hafi ásakað Helgu Völu Helga­dótt­ur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar, að það væri ekkert að marka hana þar sem hún hefði grætt svo mikið á flóttafólki. 

Ásmund­ur Friðriks­son­, þing­maður Sjálf­stæðis­flokks­ins, þvertekur fyrir að hann hafi ásakað Helgu Völu Helga­dótt­ur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar, að það væri ekkert að marka hana þar sem hún hefði grætt svo mikið á flóttafólki. 

Ásmundur segir í samtali við mbl.is að hann hafi einfaldlega sagt við sessunaut sinn Sigurjón Þórðarson að hagsmunagæsla fyrir lögfræðinga sem væru að vinna fyrir hælisleitendur hefði ekki gengið upp í þessu máli. Hann telur talsmáta Helgu Völu á þinginu ekki boðlegan.

„Ég var ekki að ásaka hana um neitt en þegar ég segi þetta við manninn þá segir hún stundarhátt að ég geri ekki greinarmun á því þegar ég ljúgi eða segi satt og bætir við að ég sé viðurstyggð," segir Ásmundur.

Bjögun á lýðræðinu

Þessi orðaskipti áttu sér stað eft­ir at­kvæðagreiðslu um út­lend­inga­frum­varpið á Alþingi. Ásmundur telur málatilbúnað stjórnarandstöðunnar hafa verið fyrir neðan allar hellur í þessu máli. 

„Það var talað um þetta mál í u.þ.b. 150 klukkustundir og er þetta mikil bjögun á lýðræðinu. Ég tel að ekki nokkru þjóðþingi í Evrópu myndi detta það í hug að bjóða þjóðinni upp á svona málsmeðferð,“ segir Ásmundur.

mbl.is