Vestmannaeyjabær tekur á móti 30 flóttamönnum

Flóttafólk á Íslandi | 20. mars 2023

Vestmannaeyjabær tekur á móti 30 flóttamönnum

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Vestmannaeyjum. Samningurinn kveður á um að Vestmannaeyjabær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 30 flóttamönnum.

Vestmannaeyjabær tekur á móti 30 flóttamönnum

Flóttafólk á Íslandi | 20. mars 2023

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og …
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Ljósmynd/Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Vestmannaeyjum. Samningurinn kveður á um að Vestmannaeyjabær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 30 flóttamönnum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Vestmannaeyjum. Samningurinn kveður á um að Vestmannaeyjabær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 30 flóttamönnum.

Þetta er níundi samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks frá því í nóvember sl. 

Staðsetning sveitarfélaga sem undirritað hafa samninga um samræmda móttöku flóttafólks.
Staðsetning sveitarfélaga sem undirritað hafa samninga um samræmda móttöku flóttafólks. Ljósmynd/Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.

Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd hér á landi eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Lögð er áhersla á nauðsynlega aðstoð til að vinna úr áföllum og að fólk fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með atvinnu, samfélagsfræðslu og námi, þar með talið íslenskunámi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir gleðiefni að Vestmannaeyjar taki á móti fólki á flótta. „Verkefnið er samfélagslega mikilvægt og það er ánægjulegt að sjá Vestmannaeyjabæ komi inn í það af fullum krafti.“

„Við hjá Vestmannaeyjabæ erum ánægð með þetta samkomulag þar sem það rammar inn með skýrum hætti þá þjónustu sem við veitum flóttafólki,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. „Það er mikil samstaða um það hér í Eyjum að sýna samfélagslega ábyrgð og við viljum gera vel varðandi móttöku og í öllu utan um haldi fyrir fólk sem er á flótta.“

mbl.is