Ný skýrsla sænsku hagstofunnar (SCB) sýnir fram á að umframdauðsföll hafa hlutfallslega verið fæst í Svíþjóð af öllum Evrópulöndum, frá því heimsfaraldur kórónuveirunnar tók að geisa.

Stefna sænskra stjórnvalda hefur verið mjög umdeild þar sem ekki var gripið til víðtækra samfélagstakmarkana í baráttu við útbreiðslu veirunnar.
Svenska Dagbladet ræddi meðal annars við Anders Tegnell, fyrrverandi sóttvarnalækni Svíþjóðar, um skýrslu hagstofunnar, en Tegnell hlaut mikla gagnrýni á sínum tíma.
Hann starfar nú hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni.
Tegnell sagðist fagna niðurstöðu SCB en benti á að dánartíðni segi ekki alla söguna. Ýmislegt spili inn í svo sem íbúasamsetning. Þrátt fyrir það gefi gögnin til kynna að Svíar hafi staðið sig nokkuð vel í sóttvarnaaðgerðum.
Niðurstöður SCB taka til þeirra dauðsfalla sem urðu umfram það sem gengur og gerist á meðan heimsfaraldrinum stóð, þ.e.a.s. dauðsfalla vegna Covid-19.
Ísland er í fimmta sæti á listanum yfir hlutfallslega fæst umframdauðsföll, en í öðru sæti er Noregur, þá Lúxemborg og í því fjórða er Danmörk.
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins um málið segir fréttamaður þess að ekki megi búast við því að yfirvöld í Svíþjóð lýsi yfir sigri í bráð vegna nálgunar sinnar.
„Litið væri á það sem óviðeigandi og fljótfærnislegt – og það væri næstum ómöguleg ályktun, þar sem svo margir þættir spila inn í. En innan fjölmiðla og við kvöldverðarborðin er ilmur af sigri: Tegnell og félagar höfðu rétt fyrir sér. Gagnrýnendurnir úti í heimi höfðu á röngu að standa,“ skrifar fréttaskýrandinn Jesper Zølck.
„Sænska leiðin var sú rétta fyrir Svíþjóð. Í dag er erfitt að finna Svía sem sitja eftir með þá tilfinningu að þeir hefðu frekar viljað búa við meiri lokanir lifa í gegnum faraldurinn. Og nýju tölurnar um umframdauðsföll styrkja þá tilfinningu.“